„Bjarnarey“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 5: | Lína 5: | ||
Margir menn hafa fengið viðurnefni í Vestmannaeyjum í gegnum tíðina. Ein sagan segir frá því að einhverju sinni var Jón nokkur, mikill fjallamaður, uppi í Bjarnarey að síga niður eggjum í bát sem var við eyna. Mennirnir á bátnum kipptu ógætilega í bandið þannig að Jón féll niður úr eynni og í sjóinn u.þ.b. 14 faðma. Öllum brá auðvitað mikið við en um leið og Jón skaust upp úr kafinu sagði hann: „Kom ekki mikill dynkur, piltar?“ Eftir þetta var hann alltaf kallaður Jón dynkur. | Margir menn hafa fengið viðurnefni í Vestmannaeyjum í gegnum tíðina. Ein sagan segir frá því að einhverju sinni var Jón nokkur, mikill fjallamaður, uppi í Bjarnarey að síga niður eggjum í bát sem var við eyna. Mennirnir á bátnum kipptu ógætilega í bandið þannig að Jón féll niður úr eynni og í sjóinn u.þ.b. 14 faðma. Öllum brá auðvitað mikið við en um leið og Jón skaust upp úr kafinu sagði hann: „Kom ekki mikill dynkur, piltar?“ Eftir þetta var hann alltaf kallaður Jón dynkur. | ||
[[Mynd:Bjarnarey-vetur.jpg|thumb|left|300px|Bjarnarey í vetrarbúningi]] | |||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, bls. 93 og 60. | * Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, bls. 93 og 60. | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur:Eyjur]] | [[Flokkur:Eyjur]] | ||
[[Flokkur:Þjóðsögur]] | [[Flokkur:Þjóðsögur]] |
Útgáfa síðunnar 4. nóvember 2005 kl. 14:45
Bjarnarey liggur skammt suður af Elliðaey og er næst henni í stærð, 0.32km². Eyjan er mjög hálend og þverhníptir klettahamrar umlykja eyjuna alla nema á litlu svæði norðaustan megin. Þar er uppgangur á eyjuna. Á miðri eyjunni er afar hár grasivaxinn fjallhnúkur og í miðjum hnúknum er dæld. Fjallhnúkurinn nefnist Bunki og er gjallgígur líkt og á Elliðaey, hæsti punktur þar er 161 m yfir sjávarmáli. Bjarnarey myndaðist í eldgosi um svipað leyti og Elliðaey eða fyrir 5-6 þúsund árum. Veiðikofi Bjarnareyinga er sunnan við Bunka og er sá eini á eyjunni. Graslendi þekur alla eyjuna og lundi hefur grafið sér holur mjög víða. Mikill og fjölbreyttur gróður er í eyjunni. Talsverðum fjölda sauðfjár er beitt í Bjarnarey og lundi er veiddur yfir sumartímann, ásamt eggjatöku að vorlagi.
Jón dynkur
Margir menn hafa fengið viðurnefni í Vestmannaeyjum í gegnum tíðina. Ein sagan segir frá því að einhverju sinni var Jón nokkur, mikill fjallamaður, uppi í Bjarnarey að síga niður eggjum í bát sem var við eyna. Mennirnir á bátnum kipptu ógætilega í bandið þannig að Jón féll niður úr eynni og í sjóinn u.þ.b. 14 faðma. Öllum brá auðvitað mikið við en um leið og Jón skaust upp úr kafinu sagði hann: „Kom ekki mikill dynkur, piltar?“ Eftir þetta var hann alltaf kallaður Jón dynkur.
Heimildir
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, bls. 93 og 60.