„Menning“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Kristleifur (spjall | framlög) Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Vestmannaeyjar hafa verið mikilvægasta verstöð landsins til fjölda ára og byggist afkoma heimamanna að mestu leyti á [[Útgerðarsaga|fiskvinnslu]] og útgerð. Auk þess eru ört vaxandi atvinnuvegir eyjaskeggja í dag ferðaþjónusta, verslun, skipaviðgerðir og menntun. Vestmannaeyingar vonast til að ferðaþjónusta aukist, bæði til að bæta atvinnuástand og svo fleiri fái að | Vestmannaeyjar hafa verið mikilvægasta verstöð landsins til fjölda ára og byggist afkoma heimamanna að mestu leyti á [[Útgerðarsaga|fiskvinnslu]] og útgerð. Auk þess eru ört vaxandi atvinnuvegir eyjaskeggja í dag ferðaþjónusta, verslun, skipaviðgerðir og menntun. Vestmannaeyingar vonast til að ferðaþjónusta aukist, bæði til að bæta atvinnuástand og svo fleiri fái að upplifa það sem eyjarnar hafa að bjóða upp á. | ||
== Skólamál == | == Skólamál == | ||
Lína 5: | Lína 5: | ||
== Söfn == | == Söfn == | ||
Mörg söfn eru í Vestmannaeyjum, en [[Safnahús Vestmannaeyja]] sem stendur við Ráðhúströð hýsir [[Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja]], [[Bókasafn Vestmannaeyja]] og [[Byggðasafn Vestmannaeyja]]. Einnig er þar til húsa [[Ljósmyndasafn Vestmannaeyja|Ljósmyndasafn]]. Við Heiðarveg stendur [[Náttúrugripasafn Vestmannaeyja]], en það er eina safnið af sinni gerð á Íslandi. Við Skansfjöru er húsið [[Landlyst]], sem var áður staðsett á Tanganum, suður af Básaskersbryggju, en það hús var fyrsta fæðingarheimilið á Íslandi, og er það nú notað til listsýninga af ýmsu tagi. Ríkisstjórn Íslands keypti nýlega afnotarétt af myndum [[Sigmund]]s sem hafa birst í áraraðir í Morgunblaðinu, og eru | Mörg söfn eru í Vestmannaeyjum, en [[Safnahús Vestmannaeyja]] sem stendur við Ráðhúströð hýsir [[Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja]], [[Bókasafn Vestmannaeyja]] og [[Byggðasafn Vestmannaeyja]]. Einnig er þar til húsa [[Ljósmyndasafn Vestmannaeyja|Ljósmyndasafn]]. Við Heiðarveg stendur [[Náttúrugripasafn Vestmannaeyja]], en það er eina safnið af sinni gerð á Íslandi. Við Skansfjöru er húsið [[Landlyst]], sem var áður staðsett á Tanganum, suður af Básaskersbryggju, en það hús var fyrsta fæðingarheimilið á Íslandi, og er það nú notað til listsýninga af ýmsu tagi. Ríkisstjórn Íslands keypti nýlega afnotarétt af myndum [[Sigmund]]s sem hafa birst í áraraðir í Morgunblaðinu, og eru áætlanir um að setja upp safn af þeim í fyrirætluðu menningarhúsi. | ||
== Orðaforði og mállýti == | == Orðaforði og mállýti == | ||
Algengt er að eldri Vestmannaeyingar tali með flámæli, en það er óalgengara meðal yngri kynslóðanna. Í | Algengt er að eldri Vestmannaeyingar tali með flámæli, en það er óalgengara meðal yngri kynslóðanna. Í einöngruðum samfélögum á borð við það sem er í Vestmannaeyjum má búast við að nokkuð sértækur orðaforði verði til. Nokkur dæmi um þau orð sem notuð eru væru: | ||
* ''útsuður'' - suðvestur, í átt að eyjunum sem eru þar, [[Suðurey]], [[Brandur|Brand]], og fleiri. | * ''útsuður'' - suðvestur, í átt að eyjunum sem eru þar, [[Suðurey]], [[Brandur|Brand]], og fleiri. |
Útgáfa síðunnar 2. nóvember 2005 kl. 22:53
Vestmannaeyjar hafa verið mikilvægasta verstöð landsins til fjölda ára og byggist afkoma heimamanna að mestu leyti á fiskvinnslu og útgerð. Auk þess eru ört vaxandi atvinnuvegir eyjaskeggja í dag ferðaþjónusta, verslun, skipaviðgerðir og menntun. Vestmannaeyingar vonast til að ferðaþjónusta aukist, bæði til að bæta atvinnuástand og svo fleiri fái að upplifa það sem eyjarnar hafa að bjóða upp á.
Skólamál
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í stöðugri sókn, þrátt fyrir mikil erfiði sem fólgin eru í að lokka námsmenn til Eyja en tilraunir hafa staðið yfir í að bjóða námsmönnum af Suðurlandinu til Eyja. Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafa komið sér upp útibúum á Heimaey og er öflugt starf unnið í fjarnámi, þar sem boðið er upp á kennaranám, viðskiptafræði og margt fleira. Grunnskólarnir í Vestmannaeyjum eru tveir, Barnaskólinn í Vestmannaeyjum og Hamarsskóli Vestmannaeyja. Þrír leikskólar sinna yngstu kynslóðinni; Rauðagerði, Kirkjugerði og Sóli. Til þess að ná að bjóða öllum börnum undir grunnskólaaldri leikskólavist er verið að undirbúa byggingu á nýjum sex deilda leikskóla sem mun rísa á Sóla-lóðinni.
Söfn
Mörg söfn eru í Vestmannaeyjum, en Safnahús Vestmannaeyja sem stendur við Ráðhúströð hýsir Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja, Bókasafn Vestmannaeyja og Byggðasafn Vestmannaeyja. Einnig er þar til húsa Ljósmyndasafn. Við Heiðarveg stendur Náttúrugripasafn Vestmannaeyja, en það er eina safnið af sinni gerð á Íslandi. Við Skansfjöru er húsið Landlyst, sem var áður staðsett á Tanganum, suður af Básaskersbryggju, en það hús var fyrsta fæðingarheimilið á Íslandi, og er það nú notað til listsýninga af ýmsu tagi. Ríkisstjórn Íslands keypti nýlega afnotarétt af myndum Sigmunds sem hafa birst í áraraðir í Morgunblaðinu, og eru áætlanir um að setja upp safn af þeim í fyrirætluðu menningarhúsi.
Orðaforði og mállýti
Algengt er að eldri Vestmannaeyingar tali með flámæli, en það er óalgengara meðal yngri kynslóðanna. Í einöngruðum samfélögum á borð við það sem er í Vestmannaeyjum má búast við að nokkuð sértækur orðaforði verði til. Nokkur dæmi um þau orð sem notuð eru væru:
- útsuður - suðvestur, í átt að eyjunum sem eru þar, Suðurey, Brand, og fleiri.
- landnorður - norðaustur, í átt að meginlandi Íslands. Í landnorðri eru Elliðaey og Bjarnarey, því að oftast er miðað við Heimaey í þessum áttalýsingum.
- peyji - ungur strákur. Einnig polli.
- pæja - ung stúlka. Samanber Pæjumótið í fótbolta.
- tríkot - íþróttagalli. Orðið er komið af því þegar að ÍBV pantaði íþróttagalla erlendis frá í kringum 1970, en allir gallarnir sem komu voru merktir framleiðanda þeirra - Trikot. Frá þeim tíma hafa íþróttagallar af öllum toga hlotið þetta heiti.
Þjóðhátíð
Fræg er þjóðhátíð Eyjamanna, sem haldin er ár hvert um verslunarmannahelgi og dregur til sín fólk alls staðar að af landinu. Til hennar var fyrst stofnað árið 1874, þegar eyjaskeggjar komust ekki til hátíðahalda í landi í tengslum við 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar og móttöku fyrstu stjórnarskrár landsins úr hendi Kristjáns IX, Danakonungs, á Þingvöllum. Þá ákváðu Vestmannaeyingar að halda sína eigin hátíð. Sú hefð hefur verið að íþróttafélög bæjarins, áður Þór og Týr til skiptis en eftir sameiningu þeirra ÍBV, sjái um framkvæmd þjóðhátíðarinnar, og hljóti ágóðann af henni til að halda uppi öflugu félagsstarfi sínum allt árið um kring.
Hátíðin er haldin í Herjólfsdal fyrstu helgina í ágúst og eru fastir liðir hátíðarinnar brenna á Fjósakletti, flugeldasýning og brekkusöngur, sem hefur verið undir stjórn Árna Johnsen í tæpa þrjá áratugi.
Auk Þjóðhátíðarinnar eru margar aðrar hátíðir sem haldið er upp á. Helst má nefna Goslokahátíðina, Sjómannadaginn, Jónsmessu og fleiri minni skemmtanir.
Samgöngur
Góðar samgöngur eru við Eyjar hvort sem er með flugi eða ferju. Á síðustu árum hafa verið uppi miklar vangaveltur um það hvort mögulegt sé að gera jarðgöng til Vestmannaeyja, og hefur verið stofnað áhugamannafélagið Ægisdyr um gerð slíkra ganga. Vestmannaeyingar eru ekki allir sammála um að göng séu rétta lausnin, en þó eru eyjamenn upp til hópa sammála um að samgöngur milli lands og eyja þurfi að bæta.
Farþegaskipið Herjólfur siglir nær alla daga tvær ferðir, og getur skipið borið 500 farþega og um 40 fólksbíla.
Fyrsta flug til eyja
Sjá aðalgrein Fyrsta flug til eyja
Menning: Hátíðir — Íþróttir — Þjóðsögur — Fólk — Kirkjumál — Félög — Skipafloti Vestmannaeyja — Húsin á Heimaey — Ritsafn |