„Álsey“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 10: | Lína 10: | ||
Nokkru fyrir síðustu aldamót voru þeir Magnús Vigfússon frá [[Presthús]]um og Sigurður Sigurðsson frá [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] við aðsókn í Álsey. Sigurður vildi fara á bælið en Magnús aftraði því. Hann sagðist ekki vilja fá hann hauslausan upp aftur. | Nokkru fyrir síðustu aldamót voru þeir Magnús Vigfússon frá [[Presthús]]um og Sigurður Sigurðsson frá [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] við aðsókn í Álsey. Sigurður vildi fara á bælið en Magnús aftraði því. Hann sagðist ekki vilja fá hann hauslausan upp aftur. | ||
{{Heimildir| | |||
* Sögn Sigurðar Sigurðssonar úr Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum. | * Sögn Sigurðar Sigurðssonar úr Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum. | ||
* Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014 | * Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014 | ||
}} | |||
[[Flokkur:Eyjur]] | [[Flokkur:Eyjur]] | ||
[[Flokkur:Þjóðsögur]] | [[Flokkur:Þjóðsögur]] |
Útgáfa síðunnar 4. júlí 2005 kl. 10:02
Mynd:Álsey.PNG Álsey (Álfsey) liggur um 3.5 km vestur af Stórhöfða og er þriðja stærsta úteyjan, um 0.25km². Eyjan er girt háum hömrum, að norður hliðinni undanskilinni, og eru þeir næstum eggsléttir austan og sunnan til. Eyjan er hálend og er 137m hár grasi þakinn hryggur á miðri eyju og er hallinn mikill niður á brúnirnar. Af þessum sökum er lundabyggð þétt í Álsey og er lundinn mikið veiddur og þar er einnig fé haft á beit. Veiðikofi Álseyinga er staðsettur norðan megin á eyjunni.
Höfuðlausi sigmaðurinn
Fyrir neðan Molda í Álsey er allstórt svartfuglabæli sem sjaldan hefur verið farið á eftir að eftirfarandi atburður gerðist.
Fyrir löngu voru nokkrir menn við sig í Álsey. Einn þeirra fór á þetta bæli en þegar hann var dreginn upp aftur vantaði höfuðið á hann. Menn vissu ekki með hvaða hætti höfuðið hafði farið af honum en eftir þennan atburð voru sigamenn tregir til þess að fara á þetta bæli.
Nokkru fyrir síðustu aldamót voru þeir Magnús Vigfússon frá Presthúsum og Sigurður Sigurðsson frá Kirkjubæ við aðsókn í Álsey. Sigurður vildi fara á bælið en Magnús aftraði því. Hann sagðist ekki vilja fá hann hauslausan upp aftur.
Heimildir
- Sögn Sigurðar Sigurðssonar úr Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.
- Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014