„Guðríður Hallvarðsdóttir“: Munur á milli breytinga
(lagfæringar á Gerðisnafni.) |
(Viðbót.) |
||
Lína 11: | Lína 11: | ||
#[[Finnbogi Björnsson]] (sjá hann). | #[[Finnbogi Björnsson]] (sjá hann). | ||
#[[Guðjón Björnsson á Kirkjubóli|Guðjón Björnsson]] bóndi á [[Kirkjuból]]i, f. 1. maí 1862, maður [[Ólöf Lárusdóttir|Ólafar Lárusdóttur]], en þau voru foreldrar Þórðar, Guðjóns Bergs, Björns Friðriks og [[Lára Guðjónsdóttir|Láru]] húsfreyju á [[Kirkjuland]]i, konu [[Björn Finnbogason|Björns Finnbogasonar]]. | #[[Guðjón Björnsson á Kirkjubóli|Guðjón Björnsson]] bóndi á [[Kirkjuból]]i, f. 1. maí 1862, maður [[Ólöf Lárusdóttir|Ólafar Lárusdóttur]], en þau voru foreldrar Þórðar, Guðjóns Bergs, Björns Friðriks og [[Lára Guðjónsdóttir|Láru]] húsfreyju á [[Kirkjuland]]i, konu [[Björn Finnbogason|Björns Finnbogasonar]]. | ||
#[[Ingibjörg Björnsdóttir]] húsfreyja í [[Pétursborg]], f. 1. september 1867, kona [[Sigurðar Vigfússonar]], en þau voru foreldrar [[Vigfús Sigurðsson|Vigfúsar]], [[Hallvarður Sigurðsson|Hallvarðs]], [[Finnbogi Sigurðsson|Finnboga]], [[Gunnar Sigurðsson|Gunnars]], [[Einar Björn Sigurðsson|Björns]], [[Jón Sigurðsson|Jóns]] og [[Lilja Sigurðardóttir|Lilju]]. | #[[Ingibjörg Björnsdóttir]] húsfreyja í [[Pétursborg]], f. 1. september 1867, kona [[Sigurðar Vigfússonar]], en þau voru foreldrar [[Guðríður Björg Sigurðardóttir|Guðríðar ''Bjargar'']], [[Vigfús Sigurðsson|Vigfúsar]], [[Hallvarður Sigurðsson|Hallvarðs]], [[Finnbogi Sigurðsson|Finnboga]], [[Gunnar Sigurðsson|Gunnars]], [[Einar Björn Sigurðsson|Björns]], [[Jón Sigurðsson|Jóns]] og [[Lilja Sigurðardóttir|Lilju]]. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*[[Lára Halla Jóhannesdóttir]] frá [[Kirkjulundur|Kirkjulundi]] vann rannsóknir á prestþjónustubókum, manntölum og ættartölum, en mikið skrifaði hún eftir móður sinni [[Alda Björnsdóttir|Öldu Björnsdóttur]] fyrrum húsfreyju að [[Kirkjulundur|Kirkjulundi]], en [[Víglundur Þór Þorsteinsson]] skrifaði á Heimaslóð.}} | *[[Lára Halla Jóhannesdóttir]] frá [[Kirkjulundur|Kirkjulundi]] vann rannsóknir á prestþjónustubókum, manntölum og ættartölum, en mikið skrifaði hún eftir móður sinni [[Alda Björnsdóttir|Öldu Björnsdóttur]] fyrrum húsfreyju að [[Kirkjulundur|Kirkjulundi]], en [[Víglundur Þór Þorsteinsson]] skrifaði á Heimaslóð.}} |
Útgáfa síðunnar 28. mars 2007 kl. 22:04
Guðríður Hallvarðsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 24. febrúar 1826 í Stóra-Dal u. Eyjafjöllum.
Ætt og uppruni
Foreldrar hennar voru Hallvarður bóndi í Neðri-Dal, f. 12. desember 1791 á Hryggjum í Mýrdal, d. 4. júlí 1872 í Neðri-Dal, Jóns bónda á Hryggjum, f. 1751, d. 1827, Magnússonar og konu Jóns bónda, Vigdísar húsfreyju, f. 1763, d. 1813. Móðir Guðríðar og kona Hallvarðs var Ingibjörg húsfreyja, f. 1795 í Stóradalssókn, d. 14. apríl 1846 þar, Jóns bónda og hreppstjóra í Stóru-Mörk u. Eyjafjöllum, f. 1755, d. 1822, Guðmundssonar bónda, Ögmundssonar og konu Jóns hreppstjóra, Sigríðar húsfreyju, f. 1763 á Felli í Suðursveit, d. um 1816, Jónsdóttur, Sigurðar sýslumanns Stefánssonar.
Lífsferill
Guðríður var í heimahúsum 1845. Hún giftist Birni Einarssyni, síðar bónda á Kirkjubæ 18. október 1855.
Þau Björn fluttust frá Forsæti í Landeyjum að Sjólyst í Eyjum 1860 og með þeim Guðbjörg 6 ára og Finnbogi 4 ára, en árið 1861 fluttust þau að Kirkjubæ (4. býli) og bjuggu þar meðan Björn lifði (til 1884).
Börn og nokkrir afkomendur Björns og Guðríðar:
- Guðbjörg Björnsdóttir húsfreyja í Norður-Gerði, f. 28. júní 1854, kona Jóns Jónssonar í Norður-Gerði, f. 25. júlí 1853 (22. júlí 1854 í prþjb.), en þau voru foreldrar Jónínu Ingibjargar húsfreyju í Norður-Gerði og Björns Eiríks bónda í Norður-Gerði; og þau Guðbjörg og Jón voru fósturforeldrar Magnúsar á Hrafnabjörgum.
- Finnbogi Björnsson (sjá hann).
- Guðjón Björnsson bóndi á Kirkjubóli, f. 1. maí 1862, maður Ólafar Lárusdóttur, en þau voru foreldrar Þórðar, Guðjóns Bergs, Björns Friðriks og Láru húsfreyju á Kirkjulandi, konu Björns Finnbogasonar.
- Ingibjörg Björnsdóttir húsfreyja í Pétursborg, f. 1. september 1867, kona Sigurðar Vigfússonar, en þau voru foreldrar Guðríðar Bjargar, Vigfúsar, Hallvarðs, Finnboga, Gunnars, Björns, Jóns og Lilju.
Heimildir
- Lára Halla Jóhannesdóttir frá Kirkjulundi vann rannsóknir á prestþjónustubókum, manntölum og ættartölum, en mikið skrifaði hún eftir móður sinni Öldu Björnsdóttur fyrrum húsfreyju að Kirkjulundi, en Víglundur Þór Þorsteinsson skrifaði á Heimaslóð.