„Guðjón Sigurbjörnsson (Landamótum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|150px|''Guðjón Sigurbjörnsson. '''Guðjón Sigurbjörnsson''' frá Landamótum, verkamaður, viðgerðamaður fæddist þar 22. febr...)
 
m (Verndaði „Guðjón Sigurbjörnsson (Landamótum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 27. desember 2021 kl. 16:50

Guðjón Sigurbjörnsson.

Guðjón Sigurbjörnsson frá Landamótum, verkamaður, viðgerðamaður fæddist þar 22. febrúar 1958 og lést 2. maí 2006 í Hafnarfirði.
Foreldrar hans voru Sigurbjörn Friðrik Ólason sjómaður, f. 28. júní 1937, d. 10. febrúar 2020, og barnsmóðir hans Gréta Guðjónsdóttir frá Landamótum, verslunarkona, f. 6. apríl 1938 á Sælundi við Vesturveg 2 , d. 20. júní 2020 í Hraunbúðum.

Guðjón var með móður sinni í æsku.
Hann vann við fiskiðnað, flutti til Hafnarfjarðar. Þar vann hann við bíla- og vélaviðgerðir.
Þau Elísabet giftu sig. Þau eignuðust ekki börn saman, en Elísabet átti fjögur börn.
Guðjón bjó á Sléttahrauni 19, síðar á Arnarhrauni 16 í Hafnarfirði.
Kona Guðjóns er Elísabet Ragnarsdóttir, f. 6. október 1957.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.