Sigurbjörn Friðrik Ólason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörn Friðrik Ólason vélstjóri frá Hólmgarði fæddist 28. júní 1937 á Miðhúsum og lést 10. febrúar 2020.
Foreldrar hans voru Óli Jónsson frá Ólafsfirði, sjómaður, f. 27. júní 1909, d. 30. júlí 1981, og kona hans Jóna Gíslína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 6. júní 1915, d. 19. nóvember 1995.

Börn Jónu og Óla:
1. María Anna Óladóttir, f. 12. apríl 1932, d. 8. október 2016.
2. Guðjón Magnús (Ólason) Einarsson, f. 11. mars 1934, d. 29. október 2019. Kjörforeldrar hans voru Einar Brynjólfsson og Margrét Einarsdóttir.
3. Sigurbjörn Friðrik Ólason, f. 28. júní 1937, d. 10. febrúar 2020.
4. Einar Marvin Ólason, f. 2. maí 1944, d. 5. nóvember 1968.

Sigurbjörn Friðrik var með foreldrum sínum í æsku. Hann lærði vélstjórn og vann við hana í Eyjum.
Þau Guðmunda giftu sig 1959, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hólmgarði og við Bröttugötu 18. Þau settust að í Þorlákshöfn, bjuggu síðast við Lyngberg 19.
Sigurbjörn lést 2020 og Guðmunda 2022.

I. Kona Sigurbjarnar, (27. desember 1959), var Guðmunda Þórhildur Einarsdóttir húsfreyja, f. 22. desember 1937, d. 31. júlí 2022.
Börn þeirra:
1. Einar Óli Sigurbjörnsson vélstjóri, bifvélavirkjameistari, f. 14. nóvember 1959. Fyrrum kona hans Jósefína Stella Þorbjörnsdóttir. Kona hans Hafdís Gerður Guðmundsdóttir.
2. Svanur Þór Sigurbjörnsson vélvirkjameistari, f. 25. apríl 1962. Fyrrum kona hans Sólveig Karlsdóttir.
3. Reynir Sigurbjörnsson rafvirkjameistari, f. 11. maí 1966. Kona hans Helga Ögmundsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.