„Sigurður Auðunsson (vélstjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 17: Lína 17:
3. [[Auður Sigurðardóttir (Kirkjubæjarbraut)|Auður Sigurðardóttir]] húsfreyja, starfsmaður á ljósmyndastofu, býr í Færeyjum, f. 27. mars 1948, d. 23. janúar 1985 í Danmörku. Maður hennar Kári Jakobsen.<br>
3. [[Auður Sigurðardóttir (Kirkjubæjarbraut)|Auður Sigurðardóttir]] húsfreyja, starfsmaður á ljósmyndastofu, býr í Færeyjum, f. 27. mars 1948, d. 23. janúar 1985 í Danmörku. Maður hennar Kári Jakobsen.<br>
4. [[María Sigurðardóttir (Kirkjubæjarbraut)|María Sigurðardóttir]] húsfreyja, skrifstofukona, f. 20. september 1950. Maður hennar [[Jón Haukur Guðlaugsson]].<br>
4. [[María Sigurðardóttir (Kirkjubæjarbraut)|María Sigurðardóttir]] húsfreyja, skrifstofukona, f. 20. september 1950. Maður hennar [[Jón Haukur Guðlaugsson]].<br>
5. [[Petrína Sigurðardóttir]] húsfreyja, starfsmaður á leikskóla, býr í Danmörku, f. 8. febrúar 1955. Maður hennar [[Guðni Friðrik Gunnarsson]].
5. [[Petrína Sigurðardóttir]] húsfreyja, verkakona, starfsmaður skóla, býr í Danmörku, f. 8. febrúar 1955. Maður hennar [[Guðni Friðrik Gunnarsson]].
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  

Útgáfa síðunnar 4. nóvember 2021 kl. 19:14

Sigurður Þorbergur Auðunsson.

Sigurður Þorbergur Auðunsson frá Ysta-Skála u. Eyjafjöllum, vélstjóri fæddist þar 12. júní 1921 og lést 22. janúar 2007 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Auðunn Jónsson bóndi, f. 11. júní 1892 í Hvammi u. Eyjafjöllum, d. 15. janúar 1959, og kona hans Jórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1895 á Lambhúshól u. Eyjafjöllum, d. 11. janúar 1983.

Sigurður var með foreldrum sínum, var við störf í Eyjum frá 14 ára aldri, en heima á sumrum.
Hann lauk hinu minna vélstjóraprófi 1942.
Sigurður vann við sjómennsku, var á ýmsum Eyjabátum á árunum 1938–1945, var vélstjóri eftir 1942. Hann var vélstjóri hjá Fiski og Ís hf. 1945–1948, þegar Vinnslustöðin tók við rekstrinum. Síðan var hann vélstjóri hjá Vinnslustöðinni í hartnær 50 ár, er hann hætti störfum
Viðurkenningar:
1. Hann hlaut heiðursskjöld Vélstjórafélags Vestmannaeyja á sjómannadaginn 1986.
Þau Guðmunda giftu sig 1945, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu fyrst á Hvoli, og síðar við Kirkjubæjarbraut 16 til Goss 1973 Eftir Gos bjuggu þau lengst í Hásteinsblokkinni við Hásteinsveg 64.
Sigurður lést 2007 og Guðmunda 2015.

I. Kona Sigurðar, (8. desember 1945), var Guðmunda Björgvinsdóttir frá Hvoli, húsfreyja, f. 20. október 1927, d. 12. nóvember 2015.
Börn þeirra:
1. Björghildur Sigurðardóttir húsfreyja, verkakona, f. 16. ágúst 1945. Maður hennar Stefán Jónasson.
2. Jóna Sigurðardóttir húsfreyja, verkakona, verslunarkona, f. 16. september 1946. Maður hennar Guðni Þór Ágústsson.
3. Auður Sigurðardóttir húsfreyja, starfsmaður á ljósmyndastofu, býr í Færeyjum, f. 27. mars 1948, d. 23. janúar 1985 í Danmörku. Maður hennar Kári Jakobsen.
4. María Sigurðardóttir húsfreyja, skrifstofukona, f. 20. september 1950. Maður hennar Jón Haukur Guðlaugsson.
5. Petrína Sigurðardóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður skóla, býr í Danmörku, f. 8. febrúar 1955. Maður hennar Guðni Friðrik Gunnarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.