Sigurður Auðunsson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Þorbergur Auðunsson.

Sigurður Þorbergur Auðunsson frá Ysta-Skála u. Eyjafjöllum, vélstjóri fæddist þar 12. júní 1921 og lést 22. janúar 2007 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Auðunn Jónsson bóndi, f. 11. júní 1892 í Hvammi u. Eyjafjöllum, d. 15. janúar 1959, og kona hans Jórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1895 á Lambhúshól u. Eyjafjöllum, d. 11. janúar 1983.

Sigurður var með foreldrum sínum, var við störf í Eyjum frá 14 ára aldri, en heima á sumrum.
Hann lauk hinu minna vélstjóraprófi 1942.
Sigurður vann við sjómennsku, var á ýmsum Eyjabátum á árunum 1938–1945, var vélstjóri eftir 1942. Hann var vélstjóri hjá Fiski og Ís hf. 1945–1948, þegar Vinnslustöðin tók við rekstrinum. Síðan var hann vélstjóri hjá Vinnslustöðinni í hartnær 50 ár, er hann hætti störfum
Viðurkenningar:
1. Hann hlaut heiðursskjöld Vélstjórafélags Vestmannaeyja á sjómannadaginn 1986.
Þau Guðmunda giftu sig 1945, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu fyrst á Hvoli, og síðar við Kirkjubæjarbraut 16 til Goss 1973 Eftir Gos bjuggu þau lengst í Hásteinsblokkinni við Hásteinsveg 64.
Sigurður lést 2007 og Guðmunda 2015.

I. Kona Sigurðar, (8. desember 1945), var Guðmunda Björgvinsdóttir frá Hvoli, húsfreyja, f. 20. október 1927, d. 12. nóvember 2015.
Börn þeirra:
1. Björghildur Sigurðardóttir húsfreyja, verkakona, f. 16. ágúst 1945. Maður hennar Stefán Anders King Jónasson.
2. Jóna Sigurðardóttir húsfreyja, verkakona, verslunarkona, f. 16. september 1946. Maður hennar Guðni Þór Ágústsson.
3. Auður Sigurðardóttir húsfreyja, starfsmaður á ljósmyndastofu, býr í Færeyjum, f. 27. mars 1948, d. 23. janúar 1985 í Danmörku. Maður hennar Kári Jakobsen.
4. María Sigurðardóttir húsfreyja, skrifstofukona, f. 20. september 1950. Maður hennar Jón Haukur Guðlaugsson.
5. Petrína Sigurðardóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður skóla, hótelstarfsmaður, bjó síðast í Danmörku, f. 8. febrúar 1955, d. 24. febrúar 2023. Barnsfeður hennar Jón Helgi Reykjalín og Sigbjörn Steinþórsson. Maður hennar Guðni Friðrik Gunnarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.