„Birna Rut Guðjónsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Birna Rut Guðjónsdóttir''' frá Nýjalandi við Heimagötu 26, húsfreyja fæddist þar 7. október 1932.<br> Foreldrar hennar voru Guðjón Tómasson (Gerði)|...)
 
m (Verndaði „Birna Rut Guðjónsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 21. desember 2020 kl. 18:12

Birna Rut Guðjónsdóttir frá Nýjalandi við Heimagötu 26, húsfreyja fæddist þar 7. október 1932.
Foreldrar hennar voru Guðjón Tómasson frá Gerði, skipstjóri, f. 30. júlí 1897, d. 10. desember 1979, og kona hans Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir frá Háagarði, húsfreyja, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.

Börn Aðalheiðar og Guðjóns:
1. Birna Rut Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 7. október 1932.
2. Solveig Magnea Guðjónsdóttir skrifstofumaður í Reykjavík, f. 24. nóvember 1936, ógift.
3. Tómas Grétar Guðjónsson smiður, söðlasmiður í Reykjavík, f. 2. nóvember 1945. Kona hans Lilja Gísladóttir.

Birna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1949.
Birna vann m.a. við fiskiðnað og á leikskóla.
Þau Magnús giftu sig 1951, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Kornhól, bjuggu á Helgafellsbraut 15, voru bændur í Dölum, bjuggu síðar á Smáragötu 12, en síðast bjuggu þau á Grund við Kirkjuveg 31 og þar býr Birna.
Magnús lést 2009.

I. Maður Birnu Rutar, (7. október 1951), var Magnús Magnússon frá Kornhól, verkamaður, bóndi, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009.
Börn þeirra:
1. Aðalheiður Svanhvít Magnúsdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla, f. 6. desember 1951 í Kornhól. Maður hennar Eggert Sveinsson.
2. Gíslína Magnúsdóttir húsfreyja, m.a. starfsmaður á leikskóla, f. 8. mars 1953 í Kornhól. Maður hennar Gísli Jóhannesson Óskarsson.
3. Magnea Ósk Magnúsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 10. júní 1958 í Eyjum. Maður hennar Daði Garðarsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Þjóðskrá 1986.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.