„Aðalheiður Lóa Borgþórsdóttir“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Aðalheiður Lóa Borgþórsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 9: | Lína 9: | ||
Aðalheiður var með foreldrum sínum fyrstu ár sín, en þau skildu, er hún var fjögurra ára.
| Aðalheiður var með foreldrum sínum fyrstu ár sín, en þau skildu, er hún var fjögurra ára.

Hún var með móður sinni og Finnboga | Hún var með móður sinni í [[Franski spítalinn|Franska Spítalanum við Kirkjuveg 20]], síðan með henni hjá foreldrum hennar að [[Heiðarvegur|Heiðarvegi 55]], en með móður sinni og Finnboga síðari manni hennar á [[Þorvaldseyri|Þorvaldseyri við Vestmannabraut 35]].
Hún fluttist með þeim til Seyðisfjarðar 1971.

Aðalheiður nam við Tónlistarskólann á Seyðisfirði og síðan við Tónlistarskóla Sigursveins. Þá lærði hún ferðamálafræði við Háskólann á Hólum í Hjaltadal og lauk því námi 2006.

Aðalheiður var menningarfulltrúi á Seyðisfirði í 15 ár, markaðsstjóri Seyðisfjarðarhafnar og ferðamálafulltrúi, starfaði einnig sjálfstætt að menningar- og ferðamálum.
| Aðalheiður var menningarfulltrúi á Seyðisfirði í 15 ár, síðan markaðsstjóri Seyðisfjarðarhafnar og ferðamálafulltrúi, starfaði einnig sjálfstætt að menningar- og ferðamálum.

Hún var stofnandi og framkvæmdastjóri listahátíðarinnar | Hún var stofnandi og framkvæmdastjóri listahátíðarinnar | ||
Lunga á Seyðisfirði.
| Lunga á Seyðisfirði.

Lína 24: | Lína 24: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | ||
*Aðalheiður Lóa. | |||
*Íslendingabók.is. | *Íslendingabók.is. | ||
*Prestþjónustubækur | *Prestþjónustubækur. }} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | {{Æviskrár Víglundar Þórs}} | ||
[[Flokkur: Húsfreyjur]] | [[Flokkur: Húsfreyjur]] |
Útgáfa síðunnar 20. maí 2020 kl. 21:18
Aðalheiður Lóa Borgþórsdóttir menningarfulltrúi, ferðamálafræðingur, bæjarstjóri fæddist 1. júlí 1958 að Brimhólabraut 16.
Foreldrar hennar voru Borgþór Árnason frá Stóra-Hvammi, vélstjóri, f. þar 27. september 1932, d. 14. febrúar 2008, og kona hans Guðrún W. Andersen frá Kiðjabergi, húsfreyja, síðar gjaldkeri, bæjarfulltrúi á Seyðisfirði, f. 22. ágúst 1933, d. 15. desember 2008.
Börn Guðrúnar og Borgþórs:
1. Ágúst Heiðar Borgþórsson vélstjóri í Reykjanesbæ, nú í Sandgerði, f. 3. apríl 1952 á Kiðjabergi. Fyrrum kona hans Þóra Margrét Friðriksdóttir. Kona hans Sigríður Hvanndal Hannesdóttir.
2. Hrafnhildur Borgþórsdóttir húsfreyja, verslunarmaður í Reykjavík, f. 23. júní 1953. Maður hennar Páll Jónsson, látinn.
3. Aðalheiður Lóa Borgþórsdóttir bæjarstjóri á Seyðisfirði, f. 1. júlí 1958 að Brimhólabraut 16. Maður hennar Sigfinnur Mikaelsson.
4. Guðrún Vilborg Borgþórsdóttir á Seyðisfirði, húsfreyja, sjúkraliði, stuðningsfulltrúi, f. 11. október 1961. Maður hennar Ólafur Mikaelsson.
Aðalheiður var með foreldrum sínum fyrstu ár sín, en þau skildu, er hún var fjögurra ára.
Hún var með móður sinni í Franska Spítalanum við Kirkjuveg 20, síðan með henni hjá foreldrum hennar að Heiðarvegi 55, en með móður sinni og Finnboga síðari manni hennar á Þorvaldseyri við Vestmannabraut 35.
Hún fluttist með þeim til Seyðisfjarðar 1971.
Aðalheiður nam við Tónlistarskólann á Seyðisfirði og síðan við Tónlistarskóla Sigursveins. Þá lærði hún ferðamálafræði við Háskólann á Hólum í Hjaltadal og lauk því námi 2006.
Aðalheiður var menningarfulltrúi á Seyðisfirði í 15 ár, síðan markaðsstjóri Seyðisfjarðarhafnar og ferðamálafulltrúi, starfaði einnig sjálfstætt að menningar- og ferðamálum.
Hún var stofnandi og framkvæmdastjóri listahátíðarinnar
Lunga á Seyðisfirði.
Aðalheiður Lóa hefur verið bæjarstjóri á Seyðisfirði frá árinu 2018.
Þau Sigfinnur giftu sig 1991, eignuðust þrjú börn.
I. Maður Aðalheiðar Lóu, (1. apríl 1991), er Sigfinnur Mikaelsson framkvæmdastjóri hjá Smyril-Line, nú verktaki, f. 3. desember 1957 á Seyðisfirði. Foreldrar hans Mikael Jónsson, f. 28. september 1934, og kona hans Lilja Guðrún Ólafsdóttir Waage, f. 2. september 1938.
Börn þeirra:
1. Björt Sigfinnsdóttir húsfreyja, viðburðastjóri, framkvæmdastjóri hjá Lýðháskólanum Lunga, f. 27. mars 1984. Maður hennar Sören Björnshave Taul, danskrar ættar.
2. Jón Sigfinnsson sjálfstætt starfandi við VFX Artist í Kaupmannahöfn, f. 1. júní 1988, ókvæntur.
3. Jafet Sigfinnsson starfsmaður Blue Water, f. 17. október 1990, býr í Reykjavík, ókvæntur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Aðalheiður Lóa.
- Íslendingabók.is.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.