„Elín Halldórsdóttir (Pétursey)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Elín Halldórsdóttir''' frá Pétursey, húsfreyja í Keflavík fæddist 10. desember 1941 í Pétursey.<br> Foreldrar hennar voru Halldór Magnússon (Grundarbrekku)|Frið...) |
m (Verndaði „Elín Halldórsdóttir (Pétursey)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 19. október 2019 kl. 12:13
Elín Halldórsdóttir frá Pétursey, húsfreyja í Keflavík fæddist 10. desember 1941 í Pétursey.
Foreldrar hennar voru Friðrik Halldór Magnússon frá Grundarbrekku, yfirverkstjóri, f. 15. apríl 1904 í Nýjabæ, d. 16. janúar 1978, og kona hans Jónína Ingibjörg Gísladóttir frá Þorgrímsstöðum í Ölfusi, húsfreyja í Pétursey, f. 2. maí 1905, d. 24. nóvember 1970.
Börn Jónínu Ingibjargar og Halldórs:
1. Engilbert Halldórsson netagerðarmeistari, f. 16. maí 1930 í Hjálmholti, d. 16. janúar 2013. Kona hans er Þuríður Selma Guðjónsdóttir.
2. Hanna Guðrún Halldórsdóttir húsfreyja á Stokkseyri, forstöðukona, f. 28. september 1931 í Pétursey, d. 24. mars 1992. Maður hennar Kristján Friðbergsson.
3. Elín Halldórsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 19. desember 1941 í Pétursey. Maður hennar er Magnús Jónsson.
Barn Jónínu Ingibjargar og fósturbarn Halldórs:
4. Ingibjörg Haraldsdóttir húsfreyja í Pétursey og á Faxastíg 2b, f. 2. júlí 1925 í Stakkholti, d. 20. apríl 2010.
Elín var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Pétursey.
Hún varð þriðja bekkjar gagnfræðingur í Hlíðardalsskóla, vann við fiskiðnað og á Sjúkrahúsinu.
Þau Magnús giftu sig 1960, eignuðust fjögur börn, bjuggu í fyrstu í Rafnsholti, Kirkjuveg 66, síðan á Ásavegi 12 til Goss.
Þau fluttust að Stokkseyri, bjuggu þar í tvö ár, þá í Grindavík í fimm ár, en hafa síðan búið í Keflavík.
I. Maður Elínar, (19. desember 1960), er Magnús Jónsson frá Rafnsholti, matvælatæknir, f. 25. apríl 1940.
Börn þeirra:
1. Sandra Magnúsdóttir húsfreyja, lífeindafræðingur, f. 6. júní 1961 að Ásavegi 12. Maður hennar er Ívar Brynjólfsson.
2. Jón Magnússon skipstjóri, verkamaður á Keflavíkurflugvelli, f. 29. desember 1963. Kona hans er Juanita Bauptista frá Filippseyjum.
3. Heba Magnúsdóttir húsfreyja, sjúkraþjálfari, f. 22. ágúst 1965. Maður hennar er Indro Candi, ítalskrar ættar.
4. Halldór Magnússon forritari á Englandi, f. 23. nóvember 1976. Ókv.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Elín.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.