„Sigríður Sigurbjörnsdóttir (Sólhlíð)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Sigríður Sigurbjörnsdóttir (Sólhlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Sigríður Sigurbjörnsdóttir.JPG|thumb|200px|''Sigríður Sigurbjörnsdóttir.]] | |||
'''Sigríður Sigurbjörnsdóttir''' húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 24. október 1939 á [[Þorvaldseyri]].<br> | '''Sigríður Sigurbjörnsdóttir''' húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 24. október 1939 á [[Þorvaldseyri]].<br> | ||
Foreldrar hennar voru [[Sigurbjörn Sigfinnsson]] vélstjóri, skipstjóri f. 9. desember 1911 á [[Hnausar|Hnausum]], d. 22. september 1979, og kona hans [[Guðrún G. Gísladóttir (Sólhlíð)|Guðrún Gíslína Gísladóttir]] húsfreyja, f. 2. júní 1913, d. 29. október 1995. | Foreldrar hennar voru [[Sigurbjörn Sigfinnsson]] vélstjóri, skipstjóri f. 9. desember 1911 á [[Hnausar|Hnausum]], d. 22. september 1979, og kona hans [[Guðrún G. Gísladóttir (Sólhlíð)|Guðrún Gíslína Gísladóttir]] húsfreyja, f. 2. júní 1913, d. 29. október 1995. |
Núverandi breyting frá og með 19. janúar 2018 kl. 21:07
Sigríður Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 24. október 1939 á Þorvaldseyri.
Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Sigfinnsson vélstjóri, skipstjóri f. 9. desember 1911 á Hnausum, d. 22. september 1979, og kona hans Guðrún Gíslína Gísladóttir húsfreyja, f. 2. júní 1913, d. 29. október 1995.
Sigríður var með foreldrum sínum í æsku, fæddist á Þorvaldseyri við Vestmannabraut, var þar til tveggja ára aldurs, á Herðubreið við Heimagötu frá tveggja til 10 ára og síðan í Sólhlíð 26.
Hún tók gagnfræðapróf 1956 og vann um 18 ára skeið hjá Rafveitunni.
Þau Sævar eignuðust Sigrúnu 1960, bjuggu þá í Sólhlíð 26, keyptu Grænuhlíð 12 tæplega fokhelda 1960, luku byggingunni og fluttu í húsið í nóvember 1963 og giftu sig í sama mánuði.
Þau bjuggu í Eyjum til Goss, en fluttust þá til Reykjavíkur og hafa búið þar síðan.
Hún vann í Reykjavík hjá Lyfjaverslun Ríkisins, sem síðar varð Icepharma, í samtals 18 ár.
I. Maður Sigríðar, (16. nóvember 1963), er Lárus Sævar Sæmundsson vélstjóri, rafvirkjameistari, f. 17. janúar 1940 í Reykjavík.
Barn þeirra:
1. Sigrún Sævarsdóttir kennari og skrifstofumaður í Reykjavík, f. 9. febrúar 1960.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.
- Sigríður og Sævar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.