„Guðmundur Svavar Guðmundsson (Ey)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Guðmundur Svavar Guðmundsson''' frá Ey, sjómaður fæddist 29. apríl 1910 í Ási og drukknaði 17. apríl 1932.<br> Foreldrar hans voru [[Guðmundur Guðmundsson (Ey)|Gu...) |
m (Verndaði „Guðmundur Svavar Guðmundsson (Ey)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 5. janúar 2017 kl. 12:02
Guðmundur Svavar Guðmundsson frá Ey, sjómaður fæddist 29. apríl 1910 í Ási og drukknaði 17. apríl 1932.
Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson sjómaður í Ey, f. 6. júlí 1864 á Kirkjubæ, d. 24. nóvember 1928, og kona hans Jórunn Ingileif Magnúsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1883 í Presthúsum, d. 14. júlí 1962.
Guðmundur Svavar var með móður sinni í Ási við fæðingu, með foreldrum sínum á Hnausum 1910, í Ey 1920. Hann var með móður sinni í Ey 1930.
Guðmundur Svavar var skipverji á v.b. Atlantis VE 222, er hann féll fyrir borð og drukknaði 17. apríl 1932.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.