„Ingi Einarsson (Götu)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Jóhann ''Ingi'' Einarsson pípulagningamaður, leigubílstjóri fæddist 29. febrúar 1940 í Nýborg.<br> Foreldrar hans voru Einar Runólfsson...) |
m (Verndaði „Ingi Einarsson (Götu)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 25. nóvember 2016 kl. 20:17
Jóhann Ingi Einarsson pípulagningamaður, leigubílstjóri fæddist 29. febrúar 1940 í Nýborg.
Foreldrar hans voru Einar Runólfsson verkamaður í Götu, f. 14. mars 1892, d. 1. ágúst 1969, og kona hans Sigríður Magnúsína Guðmundsdóttir frá Ey, f. 23. janúar 1906, d. 6. september 1975.
Börn Sigríðar og Einars í Götu voru:
1. Jóhann Ingvi Einarsson, f. 26. febrúar 1925 í Ey, d. 1939. Hann var fóstraður hjá Vilhjálmi Einari Magnússyni frá Presthúsum, ömmubróður sínum, verkamanni í Reykjavík og konu hans Ólöfu Eiríksdóttur.
2. Jónína Einarsdóttir, f. 13. nóvember 1926 í Pétursborg á Fáskrúðsfirði.
3. Guðbjörg Sigfríð Einarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 23. september 1931 í Nýborg, d. 22. október 2013.
4. Rannveig Snót Einarsdóttir, f. 26. janúar 1934 í Steini, d. 15. nóvember 2007.
5. Jóhann Ingi Einarsson, f. 29. febrúar 1940 í Nýborg.
Ingi var með foreldrum sínum í Nýborg við fæðingu og síðan í Götu.
Hann lærði pípulagnir og vann við iðnina. Hann gerðist leigubílstjóri í Eyjum fram að Gosi og síðan í Reykjavík, dvelur nú á Dvalarheimilinu Hamri í Mosfellsbæ með Birnu konu sinni.
Þau Birna bjuggu á Fjólugötu 1 í Eyjum.
Kona Jóhanns Inga, (11. maí 1963), er Birna Valgerður Jóhannesdóttir frá Kirkjulundi, talsímakona í Eyjum, húsfreyja, f. 10. október 1937.
Börn þeirra:
1. Alda Jóhanna Jóhannsdóttir, f. 10. október 1963.
2. Erna Sigríður Jóhannsdóttir, f. 29. maí 1965.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Prestþjónustubækur.
- Soffía Harðardóttir.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.