Guðbjörg Sigfríð Einarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðbjörg Sigfríð Einarsdóttir.

Guðbjörg Sigfríð Einarsdóttir frá Götu, húsfreyja, verkakona, fæddist 23. september 1931 í Nýborg og lést 22. október 2013.
Foreldrar hennar voru Einar Runólfsson verkamaður í Götu, f. 14. mars 1892, d. 1. ágúst 1969, og kona hans Sigríður Magnúsína Guðmundsdóttir frá Ey, f. 23. janúar 1906, d. 6. september 1975. 2. nóvember 2013.

Börn Sigríðar og Einars í Götu voru:
1. Jóhann Ingvi Einarsson, f. 26. febrúar 1925 í Ey, d. 1939. Hann var fóstraður hjá Vilhjálmi Einari Magnússyni frá Presthúsum, ömmubróður sínum, verkamanni í Reykjavík og konu hans Ólöfu Eiríksdóttur.
2. Jónína Einarsdóttir, f. 13. nóvember 1926 í Pétursborg á Fáskrúðsfirði.
3. Guðbjörg Sigfríð Einarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 23. september 1931 í Nýborg, d. 22. október 2013.
4. Rannveig Snót Einarsdóttir, f. 26. janúar 1934 í Steini, d. 15. nóvember 2007.
5. Jóhann Ingi Einarsson, f. 29. febrúar 1940 í Nýborg.

Guðbjörg var með foreldrum sínum í Nýborg við fæðingu, í Steini 1934, í Nýborg 1940 og í Götu.
Hún stundaði nám við Húsmæðraskólann á Laugalandi, giftist Ásbergi 1957 og eignaðist með honum fjögur börn, en vann hjá Kaupfélagi Vestmannaeyja og í Netagerðinni.
Þau bjuggu í Götu 1957, á Brimhólabraut 31 1959, Hásteinsvegi 4 1962, síðar á Svalbarði.
Fjölskyldan fluttist til Þorlákshafnar í Gosinu 1973 og bjó á Eyjahrauni 18 þar. Hún vann þar við fiskverkun.
Guðbjörg Sigfríð lést 2013.

Maður Guðbjargar Sigfríðar, (31. desember 1957), var Ásberg Lárentsínusson frá Stykkishólmi, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, f. 21. júlí 1935.
Börn þeirra:
1. Rúnar Ásbergsson tölvutæknimaður, ferðaleiðsögumaður í Reykjavík, f. 8. nóvember 1957 í Götu.
2. Ómar Berg Ásbergsson stúdent, f. 24. nóvember 1958 að Brimhólabraut 31, d. 26. október 1979.
3. Ásberg Einar Ásbergsson stúdent, vinnur við fiskeldi, f. 19. júlí 1962 að Hásteinsvegi 4.
4. Sigríður Lára Ásbergsdóttir húsfreyja; er með BA-próf í alþjóðasamskiptum frá San Diego í Kaliforníu, deildarstjóri í Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, f. 15. júlí 1963 að Hásteinsvegi 4.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 23. nóvember 2013. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.