„Heimaeyjargosið“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Heimildir úr bók Árna Gunnarssonar
Ekkert breytingarágrip
(Heimildir úr bók Árna Gunnarssonar)
Lína 5: Lína 5:
Það voru bjartsýnir Eyjamenn sem horfðu fram á veginn við áramót 1972-1973. Hafið hafði verið gjafmilt og einnig kaupendur fisksins. Í nýrri og enn stærri landhelgi, þá nýstækkaðri úr 12 sjómílum í 50, höfðu Vestmannaeyingar veitt vel í soðið. Árið 1972 áttu Vestmannaeyingar 8,4% af útflutningsverðmæti landsmanna. Nóg atvinna var í plássinu og íbúar Vestmannaeyja höfðu aldrei verið fleiri, 5273 þann 1. des 1972. Þetta bjartsýna fólk fór því að sofa áhyggjulaust að kvöldi mánudagsins 22. janúar 1973.

Ekki er hægt að segja að Vestmannaeyingar hafi fengið viðvörun um eldgos daginn fyrir upphaf þess. Þegar jarðhræringarnar eru skoðaðar þá voru aðeins tvær litlar jarðskjálftahrinur tvo daga fyrir gosið sem að mega teljast fyrirboðar. Þessar hrinur mældust í Mýrdal og Laugarvatni og töldu menn upptök nálægt Veiðivötnum eða við Heimaey. Mönnum fannst upptökin frekar vera við Veiðivötn, þar sem að það er mun algengara. En hitt kom svo í ljós. Upptökin voru á tvöfalt meira dýpi en vanalega og telja menn nú að slíkt dýpi sé fyrirboði um eldgos.  Stærsti jarðskjálftinn, um 3 á Richter, mældist kl.1:40 á aðfararnótt 23. janúar. Það var 15 mínútum fyrir sjáanlegt upphaf gossins.

== Gos hefst ==
== Gos hefst ==
Loftskeytamaðurinn [[Hjálmar Guðnason]] bað vin sinn [[Ólafur Gränz|Ólaf Gränz]] að koma í miðnæturgöngutúr rétt áður en gosið hófst. Löbbuðu þeir vanalegan rúnt, með bryggjunni, ströndinni, í átt að [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] og svo upp á [[Helgafell]]. Hin tilkomumesta sýn birtist þeim þegar þeir skoðuðu bæinn á toppi Helgafells. Jörðin hreinlega opnaðist og eldtungur hennar skutust upp á yfirborðið.  Á sama tíma var hringt í lögreglunni og henni tilkynnt að jarðeldur væri kominn upp austan Kirkjubæjar. Vantrúuð lögreglan fór á stjá og sá strax hvað var í gangi. Gos var þá hafið á 1600 metra langri sprungu og magnaðist vel á fyrstu mínútunum. Fólk var þá vaknað í austurbænum og byrjað að vekja nágranna. Var þá kveikt á brunalúðrum og á innan við klukkutíma frá upphafi gossins var bærinn vaknaður og streymdi fólkið niður á bryggju.  
Loftskeytamaðurinn [[Hjálmar Guðnason]] bað vin sinn [[Ólafur Gränz|Ólaf Gränz]] að koma í miðnæturgöngutúr rétt áður en gosið hófst. Löbbuðu þeir vanalegan rúnt, með bryggjunni, ströndinni, í átt að [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] og svo upp á [[Helgafell]]. Hin tilkomumesta sýn birtist þeim þegar þeir skoðuðu bæinn á toppi Helgafells. Jörðin hreinlega opnaðist og eldtungur hennar skutust upp á yfirborðið.  Á sama tíma var hringt í lögreglunni og henni tilkynnt að jarðeldur væri kominn upp austan Kirkjubæjar. Vantrúuð lögreglan fór á stjá og sá strax hvað var í gangi. Gos var þá hafið á 1600 metra langri sprungu og magnaðist vel á fyrstu mínútunum. Fólk var þá vaknað í austurbænum og byrjað að vekja nágranna. Var þá kveikt á brunalúðrum og á innan við klukkutíma frá upphafi gossins var bærinn vaknaður og streymdi fólkið niður á bryggju. Flestum ber saman um að upphaf gossins hafi verið um fimm mínútur í tvö.
 
Flestir voru sofnaðir á þessum tíma en [[Hjálmar Guðnason]] og [[Ólafur Gränz]] voru eins og áður segir í miðnæturgöngu. Þeir voru því með þeim fyrstu sem sáu eldinn. Í fyrstu töldu þeir að kviknað hefði í austustu húsunum í bænum, en þegar þeir höfðu áttað sig á því hvað þarna var að gerast, sneéru þeir við og hlupu heim til að vekja konur sínar og börn.

[[Guðjón Ármann Eyjólfsson]] lýsir fyrstu gosnóttinni mjög ítarlega í bók sinni ''Vestmannaeyjar byggð og eldgos''. Þar er einnig farið í sögur margra annarra af gosinu, en örvilnun fólks, skelfing og hugrekki kemur fram vel í mörgum sögunum.

== Björgunaraðgerðir á fólki og munum ==
== Björgunaraðgerðir á fólki og munum ==
Bæjarbúar söfnuðust fljótt og vel niður á [[bryggja|bryggju]]. Mikið þakkarefni í sambandi við gosið er óveðrið daginn fyrir gosið. Þá höfðu allir bátar komið í land vegna óveðurs og veðrið hafði skánað til muna með kvöldinu. Lagði fyrsti báturinn af stað með fólk um hálf þrjú, aðeins hálftíma eftir upphaf gossins. Af því má sjá að þrátt fyrir að ekkert hafi verið undirbúið voru menn í viðbragðsstöðu. Bátarnir tóku frá 50 manns upp í 400. Sjóferðin var ekki skemmtileg fyrir neinn. Vont var í sjóinn og ofan á [[sjóveiki]] og vanlíðan, bættust áhyggjur um framtíð bæjarins, húsa og lífsviðurværis. Björgunaraðgerðir fóru þó almennt vel fram og undir morgun komu bátar til Þorlákshafnar þar sem að tekið var á móti örvingluðu fólkinu. Langflestir voru fluttir með skipum en nokkur hundruð manns voru fluttir með flugvélum. Allur tiltækur flugfloti, jafnt litlar og smáar vélar, fór strax um nóttina frá Reykjavík og sótti aðallega aldraða og sjúka. Að morgni fyrsta gosdags var búið að flytja alla íbúa eyjunnar upp á meginlandið, að undanskildum 200-300 manns sem urðu eftir til að sinna þeim verkum sem þurfti að vinna.  
Bæjarbúar söfnuðust fljótt og vel niður á [[bryggja|bryggju]]. Mikið þakkarefni í sambandi við gosið er óveðrið daginn fyrir gosið. Þá höfðu allir bátar komið í land vegna óveðurs og veðrið hafði skánað til muna með kvöldinu. Loftskeytastöðin hafði kallað út hið alþjóðlega neyðarkall "may-day" og tilkynnt að byrjað væri að gjósa í bænum. Bátar, sem voru að veiðum í nágreinni eyjanna, hættu þegar og héldu þangað.
 
Fyrsti báturinn lagði af stað með fólk um hálf þrjú, aðeins um hálftíma eftir upphaf gossins. Af því má sjá að þrátt fyrir að ekkert hafi verið undirbúið voru menn í viðbragðsstöðu. Bátarnir tóku frá 50 manns upp í 400. Sjóferðin var ekki skemmtileg fyrir neinn. Vont var í sjóinn og ofan á [[sjóveiki]] og vanlíðan, bættust áhyggjur um framtíð bæjarins, húsa og lífsviðurværis. Björgunaraðgerðir fóru þó almennt vel fram og undir morgun komu bátar til Þorlákshafnar þar sem að tekið var á móti örvingluðu fólkinu. Langflestir voru fluttir með skipum en nokkur hundruð manns voru fluttir með flugvélum. Allur tiltækur flugfloti, jafnt stórar og smáar vélar, fóru strax um nóttina frá Reykjavík og sóttu aðallega aldraða og sjúka. Að morgni fyrsta gosdags var búið að flytja alla íbúa eyjunnar upp á meginlandið, að undanskildum 200-300 manns sem urðu eftir til að sinna þeim verkum sem þurfti að vinna.  

Strax og ljóst var að björgunaraðgerðir á fólki höfðu heppnast sem skildi var hafist handa við að bjarga því sem var hægt að bjarga af eignum fólks. Hafist var handa í austurbænum, þeim hluta sem að stóð næst eldsupptökum. Hjólin tóku að snúast eftir nokkra daga. Björgunarsveitir komu ofan af landi og fljótt varð til samfélag. Samfélag þar sem að flestir unnu kauplaust, fengu einungis mat og húsaskjól í laun og ekkert var öruggt varðandi starfsumhverfi. Sjálfboðaliðar úr trésmiðafélögum í Reykjavík negldu fyrir glugga sem sneru að eldgosinu. Nokkur hús féllu saman vegna gjalls á þökum og því fóru trésmiðirnir einnig í að styrkja húsþök, á meðan stúdentar ruddu gjallið af þökunum. Nóg var að gera og var mikið álag á lúnu hjálparfólki. Heilu búslóðirnar voru fluttar upp á land eða komið í örugga geymslu. [[Bílaeign]] Vestmannaeyinga var mikil og hátt í þúsund bílum komið á fast Ísland. Með ótrúlegu þrekvirki náðist að koma í veg fyrir milljarðatjón á eignum bæjarbúa.

Lína 80: Lína 84:
* ''Morgunblaðið'' 60. árg. 1973. 23.-26. janúar.
* ''Morgunblaðið'' 60. árg. 1973. 23.-26. janúar.
* Þorleifur Einarsson. 1974. ''Gosið í Heimaey í máli og myndum''. Reykjavík: Heimskringla.
* Þorleifur Einarsson. 1974. ''Gosið í Heimaey í máli og myndum''. Reykjavík: Heimskringla.
* Guðjón Ármann Eyjólfsson. 1973. ''Vestmannaeyjar byggð og eldgos''. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja, 1973.
* Guðjón Ármann Eyjólfsson. 1973. Vestmannaeyjar byggð og eldgos''. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja, 1973.
* Árni Gunnarsson. 1973. ''Eldgos í Eyjum''. Reykjavík: Iceland Review, 1973.
* [http://visindavefur.hi.is Vísindavefur Háskóla Íslands]
* [http://visindavefur.hi.is Vísindavefur Háskóla Íslands]
}}
}}
2.379

breytingar

Leiðsagnarval