„Rósinkranz Eiríksson (Gjábakka)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Rósinkranz Eiríksson''' sjómaður frá Gjábakka fæddist 10. september 1850 og drukknaði 26. febrúar 1869.<br> Foreldrar hans voru [[Kristín Jónsdóttir (Gj...) |
m (Verndaði „Rósinkranz Eiríksson (Gjábakka)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 6. apríl 2015 kl. 15:31
Rósinkranz Eiríksson sjómaður frá Gjábakka fæddist 10. september 1850 og drukknaði 26. febrúar 1869.
Foreldrar hans voru Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 1811, d. 14. október 1883, og maður hennar Eiríkur Hansson sjávarbóndi, f. 3. ágúst 1815, drukknaði 26. febrúar 1869.
Rósinkranz var með foreldrum sínum frá fæðingu. Hann var vinnumaður hjá Magnúsi Oddssyni á Kirkjubæ 1866, var skipverji á Blíð og fórst við Bjarnarey 1869, ásamt föður sínum, Jóni bróður sínum, Jóni lóðs mági sínum, Guðna verðandi mági sínum og fleiri í Útilegunni miklu við Bjarnarey 1869.
Rósinkranz var ókvæntur og barnlaus.
Þeir, sem fórust við Bjarnarey voru:
1. Jón Jónsson lóðs á Vilborgarstöðum, formaður. Kona hans var Veigalín Eiríksdóttir frá Gjábakka.
2. Eiríkur Hansson bóndi á Gjábakka.
3. Jón Eiríksson, sonur Eiríks Hanssonar.
4. Rósinkranz Eiríksson.
5. Guðni Guðmundsson smiður í Fagurlyst, verðandi tengdasonur Eiríks Hanssonar, sambýlismaður Málfríðar Eiríksdóttur.
6. Snjólfur Þorsteinsson í Görðum við Kirkjubæ unnusti Þorgerðar Gísladóttur.
7. Bjarni Magnússon bóndi á Kirkjubæ.
8. Jósep Sveinsson sjómaður í Háagarði.
9. Jón Guðmundsson frá Núpakoti undir Eyjafjöllum, óskilgetinn sonur Margrétar Halldórsdóttur, síðari konu Jóns Þorgeirssonar bónda á Oddsstöðum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Prestþjónustubækur.
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum. Jóhann Gunnar Ólafsson. Þorsteinn Johnson 1938-1939.