„Ritverk Árna Árnasonar/Sigurður Einarsson (Norðurgarði)“: Munur á milli breytinga
m (Viglundur færði Sigurður Einarsson (Norðurgarði) á Ritverk Árna Árnasonar/Sigurður Einarsson (Norðurgarði)) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''''<big>Kynning.</big>''''' | |||
'''Sigurður Einarsson''', [[Norðurgarður vestri|Norðurgarði vestri]], fæddist 6. júlí 1895 og lést 1. júní 1929, hrapaði í [[Geldungur|Geldungi]].<br> | '''Sigurður Einarsson''', [[Norðurgarður vestri|Norðurgarði vestri]], fæddist 6. júlí 1895 og lést 1. júní 1929, hrapaði í [[Geldungur|Geldungi]].<br> | ||
Faðir hans var [[Einar Jónsson (Norðurgarði)|Einar Jónsson]] bóndi í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937.<br> | Faðir hans var [[Einar Jónsson (Norðurgarði)|Einar Jónsson]] bóndi í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937.<br> | ||
Lína 16: | Lína 18: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | ||
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012. | *Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012. | ||
*Garður.is. | *Garður.is. | ||
*Heimaslóð. | |||
*Íslendingabók.is}} | *Íslendingabók.is}} | ||
[[Flokkur: Bændur]] | [[Flokkur: Bændur]] |
Útgáfa síðunnar 13. ágúst 2013 kl. 22:33
Kynning.
Sigurður Einarsson, Norðurgarði vestri, fæddist 6. júlí 1895 og lést 1. júní 1929, hrapaði í Geldungi.
Faðir hans var Einar Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937.
Móðir Sigurðar var Árný Einarsdóttir húsfreyja, f. 24. apríl 1863, d. 9. ágúst 1938.
Kona Sigurðar var Margrét, f. 23. ágúst 1894, d. 3. júní 1934.
Barn Sigurðar og Margrétar:
Ásta Margrét, f. 25. september 1924, d. 19. nóvember 1995.
Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.
Sigurður var hár vexti og þrekinn, dálítið lotinn í herðum, rauðbirkinn, fremur breiðleitur og andlit karlmannlegt.
Hann var allvel styrkur, en stirður í hreyfingum og heldur þunglamalegur á velli. Heldur var hann hlédrægur, en í sínum hóp gat hann brugðið fyrir sig glettni og var oft orðheppinn í viðræðum, þótt hins vegar hafi hann þótt yfirleitt þungur í lund.
Veiðimaður var Sigurður í meðallagi, en iðinn og þrautseigur og töluvert kappsfullur. Hann var og mikið við bjargferðir, duglegur liðsmaður, en enginn afburðamaður; til þess vantaði lipurðina. Sigamaður var hann nokkur, þótt aldrei næði hann sérlegri leikni í fjallaferðum.
Sigurður var mest við lundaveiðar í Elliðaey, en fór um margar úteyjanna til fugla og eggja. Hann hrapaði til dauðs í Geirfuglaskeri við eggjatöku 1. júní 1929.
Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
- Garður.is.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.is