„Hellisey“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
{{Eyjur}}
{{Eyjur}}
[[Mynd:Hellis2a.jpg|thumb|right|Hellisey í Vestmannaeyjum]]
[[Mynd:Hellis2a.jpg|thumb|300px|right|Hellisey í Vestmannaeyjum]]

'''Hellisey''' liggur 3 km sunnan við [[Brandur|Brand]] og eru eyjarnar tvær líkar að lögun og stærð. Eyjan snýr þverhníptum hömrum sínum í vestur, norður og austur og er mesta hæð um 105 metrar. Veiðkofi Helliseyinga var endurgerður 1968 og er staðsettur norðan megin á eyjunni. Vegna mikils ha lla í brekkum er lundabyggð mjög þétt í eyjunni og sumstaðar kemur það niður á gróðurlendi.  Gróður hefur einnig orðið fyrir tjóni vegna stækkandi varplands súlu. Hellisey er á lista yfir svæði á  náttúruverndaráætlun. [[Súla|Súluveiði]], [[Lundi|lundaveiði]] og [[eggjataka]] er stunduð í Hellisey og [[sauðfé]] haft á beit.

Útgáfa síðunnar 15. október 2005 kl. 15:05

Hellisey í Vestmannaeyjum

Hellisey liggur 3 km sunnan við Brand og eru eyjarnar tvær líkar að lögun og stærð. Eyjan snýr þverhníptum hömrum sínum í vestur, norður og austur og er mesta hæð um 105 metrar. Veiðkofi Helliseyinga var endurgerður 1968 og er staðsettur norðan megin á eyjunni. Vegna mikils ha lla í brekkum er lundabyggð mjög þétt í eyjunni og sumstaðar kemur það niður á gróðurlendi. Gróður hefur einnig orðið fyrir tjóni vegna stækkandi varplands súlu. Hellisey er á lista yfir svæði á náttúruverndaráætlun. Súluveiði, lundaveiði og eggjataka er stunduð í Hellisey og sauðfé haft á beit.

Súlur í Hellisey

Mikil súlnabreiða sem heitir Flagtir er norðvestan í eyjunni. Austan í Hellisey eru Stórhellar og þar var ein mesta súlubyggð í bergi í Vestmanneyjum.

Austan í eyjunni niður af Hánefi er Sámur sem er mikið og skemmtilegt fýlapláss. Þar eru 400 - 600 fýlar. Fýll sat þar svo fast að gamalt orðtak var, að jafnöruggt væri að eiga fýlinn í Sám eins og saltaðan í kagga. Hægt er að komast í Sám af sjó eftir tæpum vegi og til halds og trausts voru þrír bergboltar. Mynd:Hellisey-kort.PNG

Helliseyjarvísan

Sumir segja að Þórð Geirmundsson hafi dreymt vísu eftir að hann hafi verið beðinn um að síga Stóruhellana í Hellisey. Aðrir segja að Jón dynkur hafi ort hana.

Hörð eru sig í Háubæli og hættuleg,
Hábrandinn ei hræðist ég,
en Hellisey er ógurleg.

Heimildir

  • Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014.