„Álsey“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
{{Eyjur}} | {{Eyjur}} | ||
[[Mynd:Álsey.PNG|thumb|left|Gamalt kort af eynni]] | [[Mynd:Álsey.PNG|thumb|left|Gamalt kort af eynni]] | ||
'''Álsey''' (''Álfsey'') liggur um 3.5 km vestur af [[Stórhöfði|Stórhöfða]] og er þriðja stærsta úteyjan, um 0.25km². Eyjan er | '''Álsey''' (''Álfsey'') liggur um 3.5 km vestur af [[Stórhöfði|Stórhöfða]] og er þriðja stærsta úteyjan, um 0.25km². Eyjan er gyrt háum hömrum, að norður hliðinni undanskilinni, og eru þeir næstum eggsléttir austan og sunnan til. Eyjan er hálend og er 137 m hár grasi þakinn hryggur á miðri eyju og er hallinn mikill niður á brúnirnar. Af þessum sökum er lundabyggð þétt í Álsey og er lundinn mikið veiddur og þar er einnig fé haft á beit. Veiðikofi Álseyinga er staðsettur norðan megin á eyjunni. | ||
== Höfuðlausi sigmaðurinn == | == Höfuðlausi sigmaðurinn == |
Útgáfa síðunnar 3. nóvember 2005 kl. 14:36
Mynd:Álsey.PNG Álsey (Álfsey) liggur um 3.5 km vestur af Stórhöfða og er þriðja stærsta úteyjan, um 0.25km². Eyjan er gyrt háum hömrum, að norður hliðinni undanskilinni, og eru þeir næstum eggsléttir austan og sunnan til. Eyjan er hálend og er 137 m hár grasi þakinn hryggur á miðri eyju og er hallinn mikill niður á brúnirnar. Af þessum sökum er lundabyggð þétt í Álsey og er lundinn mikið veiddur og þar er einnig fé haft á beit. Veiðikofi Álseyinga er staðsettur norðan megin á eyjunni.
Höfuðlausi sigmaðurinn
Fyrir neðan Molda í Álsey er allstórt svartfuglabæli sem sjaldan hefur verið farið á eftir að eftirfarandi atburður gerðist.
Fyrir löngu voru nokkrir menn við sig í Álsey. Einn þeirra fór á þetta bæli en þegar hann var dreginn upp aftur vantaði höfuðið á hann. Menn vissu ekki með hvaða hætti höfuðið hafði farið af honum en eftir þennan atburð voru sigamenn tregir til þess að fara á þetta bæli.
Nokkru fyrir síðustu aldamót voru þeir Magnús Vigfússon frá Presthúsum og Sigurður Sigurðsson frá Kirkjubæ við aðsókn í Álsey. Sigurður vildi fara á bælið en Magnús aftraði því. Hann sagðist ekki vilja fá hann hauslausan upp aftur.
Heimildir
- Sögn Sigurðar Sigurðssonar úr Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.
- Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014