„Húsin á Heimaey“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 11: | Lína 11: | ||
Í Ársskýrslu Fasteignamats ríkisins 2003 kemur fram um Vestmannaeyjar: | Í Ársskýrslu Fasteignamats ríkisins 2003 kemur fram um Vestmannaeyjar: | ||
[[Mynd:Midbaer.jpg|thumb|300px|Miðbær Vestmannaeyja um miðja síðustu öld.]] | |||
* '''Fjöldi íbúða samtals 1.642''' | * '''Fjöldi íbúða samtals 1.642''' | ||
* Einbýli 967 | * Einbýli 967 |
Útgáfa síðunnar 9. júlí 2007 kl. 15:16
Frá upphafi byggðar í Vestmannaeyjum var gjarnan sá siður hafður að gefa hverju húsi nafn, sem húsbyggjandi valdi oft frá æskustöðvum sínum, en á seinni árum hefur þessi siður að mestu fallið niður og hvert íbúðarhús fær númer í stað nafns. Þannig er hætta á nöfn húsanna gleymist sé þeim ekki safnað saman.
- Listi yfir hús. Hér má skoða lista yfir öll hús sem bara nafn í Vestmannaeyjum auk ónefndra húsa.
Fyrstur manna í Eyjum, sem byrjaði að safna þessum nöfnum, var Ingibjörg Jónsdóttir, húsfreyja í Þorlaugargerði eystra, og tók Þorsteinn Víglundsson við af henni.
Elsta húsið í Eyjum er Landlyst. Það var byggt árið 1858 og er langelst húsa í dag. Mörg gömlu húsanna fóru undir hraun eða hafa verið rifin á seinni árum. Elsta íbúðarhúsið er Langi-Hvammur við Kirkjuveg, en það var byggt árið 1901. Svo eru hús eins og Ás og London sem eru byggð árið 1903. Mörg hús voru byggð á næstu árum og er stór hluti húsa í miðbænum byggð á fyrsta fjórðungi tuttugustu aldarinnar.
Hér má einnig finna nokkur tómthús sem skráð voru í Vestmannaeyjum.
Í Ársskýrslu Fasteignamats ríkisins 2003 kemur fram um Vestmannaeyjar:
- Fjöldi íbúða samtals 1.642
- Einbýli 967
- Tvíbýli 340
- 3-5 íbúða hús 65
- 6-12 íbúða hús 146
- Fleiri en 13 íbúðir í húsi 85
- Íb. í öðrum húsum en íbúðarhúsum 39
Götur
Göturnar á Heimaey eru 66 talsins, en einungis er búið við 60 þeirra auk þeirra sem búa í húseignum er bera bæjarnöfn, og svo Hraunbúðum.
Engir íbúar búa við eftirtalin götuheiti niðri við sjávarsíðuna: Græðisbraut, Hafnargötu, Hlíðarveg, Skildingaveg, Tangagötu og Ægisgötu.
Tölfræði
Við eftirtaldar götur bjuggu 100 manns og fleiri árið 2005:
- Áshamar, 289 íbúar.
- Foldahraun, 258 íbúar.
- Illugagata, 209 íbúar.
- Hásteinsvegur, 190 íbúar.
- Hrauntún, 187 íbúar.
- Hólagata, 182 íbúar.
- Búhamar, 172 íbúar.
- Höfðavegur, 171 íbúar.
- Heiðarvegur, 167 íbúar.
- Brattagata, 141 íbúar.
- Faxastígur, 134 íbúar.
- Vestmannabraut, 133 íbúar.
- Brimhólabraut, 126 íbúar.
- Ásavegur, 109 íbúar.
- Dverghamar, 107 íbúar.
- Kirkjuvegur, 105 íbúar.
Hús skráð utan gatna
- Bakkahús
- Björnshjallur
- Brattahús
- Breiðfjörðshús
- Brimhóll
- Dalahjallur
- Eilífðin
- Einarshús
- Ensomhed
- Eyjólfshús
- Fjós
- Fljótsdalur
- Garðsfjós
- Guðríðarhjallur
- Gvendarkofi
- Gómorra
- Hamraborg
- Helgabær
- Hrafnaklettur
- Hraunprýði
- Ísakshús
- Hólstún
- Jötunheimar
- Klettaborg
- Káragerði
- Larshús
- Miðbúðin
- Ormsbær
- Rass
- Sandhús
- Sjávarhólar
- Sjóbúð
- Stórulág
- Tómasarbær
- Þorkelshjallur
- Þórðarhjallur