„Gunnar Jónas Björgvinsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Gunnar Jónas Björgvinsson''' frá Vallartúni við Austurveg 33, sjómaður fæddist 5. september 1950 og fórst með mb. Þráni NK 70 5. nóvember 1968.<br> Foreldrar hans voru Björgvin Guðmundur Þórðarson sjómaður, vélstjóri, kaupmaður, f. 11. maí 1924 á Fáskrúðsfirði, d. 26. maí 2001, og kona hans Ásta Guðfinna Finnbogadóttir frá Vallartúni, húsfreyja,...) |
m (Verndaði „Gunnar Jónas Björgvinsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 10. apríl 2024 kl. 10:27
Gunnar Jónas Björgvinsson frá Vallartúni við Austurveg 33, sjómaður fæddist 5. september 1950 og fórst með mb. Þráni NK 70 5. nóvember 1968.
Foreldrar hans voru Björgvin Guðmundur Þórðarson sjómaður, vélstjóri, kaupmaður, f. 11. maí 1924 á Fáskrúðsfirði, d. 26. maí 2001, og kona hans Ásta Guðfinna Finnbogadóttir frá Vallartúni, húsfreyja, f. 21. febrúar 1927, d. 11. janúar 2020.
Börn Ástu og Björgvins
1. Guðrún Þórdís Björgvinsdóttir, f. 16. febrúar 1949, d. 14. október 2004. Maður hennar Gísli Tómas Ívarsson.
2. Gunnar Jónas Björgvinsson, f. 5. september 1950, d. 5. nóvember 1968, fórst með Þráni VE.
3. Lilja Björgvinsdóttir sjúkraliði, f. 27. maí 1967. Maður hennar Þórhallur Óskarsson.
4. Gunnar Björgvinsson slökkviliðsmaður, starfsmaður Rauða krossins, f. 9. febrúar 1969. Fyrrum kona hans Margrét Gunnarsdóttir. Kona hans Birna Blöndal.
Gunnar var með foreldrum sínum, í Vallartúni og við Herjólfsgötu.
Hann varð sjómaður, var háseti á Þráni NK 70, er hann fórst 5. nóvember 1968.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið 1968. Forsíðufrétt 12. nóvember 1968.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.