„Einar Erlendsson (húsgagnasmiður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Einar Magnús Erlendsson''' húsgagnasmiður fæddist 11. janúar 1932 á Stað við Helgafellsbraut 10 og lést 19. júlí 2017.<br> Foreldrar hans voru Erlendur Kristjánsson frá Auraseli í Fljótshlíð, útgerðarmaður, skósmiður, f. 7. desember 1887, d. 11. október 1931 og barnsmóðir hans Sigríður Sesselja Einarsdóttir verkakona, saumakona frá Miðey í A-Landeyjum, f. 26. apríl 1886, d. 29. desember...)
 
m (Verndaði „Einar Erlendsson (húsgagnasmiður)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 27. janúar 2022 kl. 17:03

Einar Magnús Erlendsson húsgagnasmiður fæddist 11. janúar 1932 á Stað við Helgafellsbraut 10 og lést 19. júlí 2017.
Foreldrar hans voru Erlendur Kristjánsson frá Auraseli í Fljótshlíð, útgerðarmaður, skósmiður, f. 7. desember 1887, d. 11. október 1931 og barnsmóðir hans Sigríður Sesselja Einarsdóttir verkakona, saumakona frá Miðey í A-Landeyjum, f. 26. apríl 1886, d. 29. desember 1987.

Barn Erlendar og barnsmóður hans Guðlaugar Sigríðar Pálsdóttur:
1. Sverrir Erlendsson silfursmiður, f. 1. febrúar 1913, d. 18. september 1988.
Barn Erlendar og fyrri konu hans Hansínu Hansdóttur:
2. Unnur Hansína Erlendsdóttir, f. 25. nóvember 1916, d. 10. apríl 1917.
Barn Erlendar og síðri konu hans Geirlaugar Sigurðardóttur:
3. Ólafur Jónsson Erlendsson kaupmaður í Turninum, síðar á Kjalarnesi, f. 4. ágúst 1918, d. 11. október 1974.
Barn Erlendar og barnsmóður hans Sigríðar Sesselju Einarsdóttur:
4. Einar Magnús Erlendsson húsgagnasmiður, f. 11. janúar 1932, d. 19. júlí 2017.

Einar ólst upp með móður sinni, á Stað við Helgafellsbraut 10, í Stakkagerði við Kirkjuveg 40 og á Seljalandi við Hásteinsveg 10 og Vestmannabraut 32, var í sveit hjá frændfólki í Landeyjum mörg sumur.
Hann varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1949, lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði hjá Ólafi Gränz|.
Hann stofnaði Nýja-Kompaníið með Ólafi Runólfssyni nokkrum öðrum eftir nám og síðan verkstæðið Þorvaldur & Einar með Þorvaldi Vigfússyni. Síðustu starfsár sín vann Einar í Húsey.
Einar stundaði ungur íþróttir, lék með Lúðrasveitinni.. Hann var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins í Eyjum og starfaði þar mikið. Hann var sæmdur gullstjörnu, þegar klúbburinn varð 40 ára og gerður að heiðursfélaga, þegar hann varð áttræður.
Þau Ása giftu sig 1955, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu í Görðum við Vestmannabraut 32, síðar á Illugagötu 12

I. Kona Einars, (13. ágúst 1955), er Ása Ingibergsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 13. ágúst 1934 á Geirlandi.
Börn þeirra:
1. Ingibergur Einarsson, f. 9. febrúar 1955. Kona hans Sigríður Kristín Finnbogadóttir.
2. Sigríður Einarsdóttir, f. 29. desember 1957. Barnsfaðir hennar hennar Gunnar Marel Eggertsson. Sambúðarmaður Baldvin Örn Arnarson.
3. Ágúst Einarsson, f. 9. desember 1960. Kona hans Iðunn Dísa Jóhannesdóttir.
4. Helgi Einarsson, f. 9. desember 1963. Sambúðarkona Agnes Bára Benediktsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 29. júlí 2017. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.