„Unnur Guðmundsdóttir (Fagradal)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðrún ''Unnur'' Guðmundsdóttir''' frá Fagradal, húsfreyja fæddist 5. mars 1964. <br> Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðnason (Fagradal)|Guðmundur Guðn...) |
m (Verndaði „Unnur Guðmundsdóttir (Fagradal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 10. nóvember 2020 kl. 13:13
Guðrún Unnur Guðmundsdóttir frá Fagradal, húsfreyja fæddist 5. mars 1964.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðnason trésmiður, bóndi, sjómaður, f. 30. apríl 1924 á Búðareyri við Reyðarfjörð, d. 18. janúar 1995 á Húsavík, og kona hans Fjóla Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 21. júlí 1929 á Hellissandi, d. 8. júní 1998.
Börn Fjólu og Guðmundar:
1. Kristín Kolbrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og á Hellu, f. 14. október 1948, d. 10. janúar 2020. Maður hennar Samúel Guðmundsson.
2. Valey Guðmundsdóttir húsfreyja á Selfossi, f. 13. september 1950. Maður hennar Svavar Valdimarsson.
3. Guðmundur Guðmundsson sjómaður, síðar á Húsavík, f. 24. mars 1954. Kona hans Ólína María Steinþórsdóttir.
4. Halldór Guðmundsson sjómaður í Eyjum, bóndi í Suðursveit, trésmiður í Kópavogi, f. 29. nóvember 1955, d. 28. ágúst 2014. Barnsmóðir hans Anna Ísfold Kolbeinsdóttir. Kona hans Inga Lucia Þorsteinsdóttir.
5. Ingi Vigfús Guðmundsson öryrki, dvaldi á Kópavogshæli, síðar í sambýli að Skógarseli í Reykjavík, f. 28. júlí 1957, d. 16. desember 2004, ókvæntur.
6. Guðni Þorberg Guðmundsson sjómaður, f. 15. maí 1960, d. 17. febrúar 1981 í sjóslysi, er hann tók út af Heimaey VE við Þykkvabæjarfjöru.
7. Guðrún Unnur Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 5. mars 1964. Maður hennar, skildu, Guðjón Þ. Gíslason.
Unnur var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Eyja 1969 og bjó hjá þeim í Fagradal 1972, á Illugagötu 60 1979.
Hún vann við fiskiðnað.
Þau Guðjón Þór giftu sig 1986, eignuðust tvö börn, en skildu. Þau bjuggu í fyrstu á Herjólfsgötu 9, þá á Brimhólabraut 5, en að síðustu við Boðaslóð 17.
Hjónin fluttu til Reykjavíkur, en til Hellu 1998 og skildu.
Unnur bjó í Álfkonuhvarfi 29, en býr nú á Hellu.
I. Maður Guðrúnar Unnar, (9. ágúst 1986, skildu), er Guðjón Þór Gíslason vélsmiður í Eyjum, f. 3. ágúst 1962.
Börn þeirra:
1. Björg Guðjónsdóttir yngri, heilbrigðisverkfræðingur hjá Ríkisspítulum, f. 22. janúar 1983. Sambúðarmaður Óskar Eiríksson.
2. Tanja Dögg Guðjónsdóttir sjávarútvegsfræðingur, f. 28. febrúar 1990. Maður hennar Sveinn Ágúst Kristinsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
- Íslendingabók.is.
- Unnur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.