Fjóla Guðmundsdóttir (Fagradal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Fjóla Guðmundsdóttir frá Hellissandi, húsfreyja, f. 21. júlí 1929 í Keflavík þar og lést 8. júní 1998.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson vélstjóri, bóndi á Hellissandi, f. 6. janúar 1899, drukknaði 24. febrúar 1932, og kona hans Kristín Jóhanna Jónasdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1903, d. 5. maí 1971.
Fósturforeldrar Fjólu voru Vigfús Stefánsson og Ingibjörg Einarsdóttir föðursystir hennar.

Fjóla var með foreldrum sínum í fyrstu, en faðir hennar drukknaði, er hún var á þriðja árinu. Hún fór í fóstur til Ingibjargar og Vigfúsar í Flatey á Breiðafirði og ólst þar upp.
Hún leitaði til Reykjavíkur, vann á Hótel Vík, starfaði síðar á Selfossi.
Þau Guðmundur giftu sig 1957, eignuðust sjö börn, en skildu. Þau bjuggu fyrst í Reykjavík, síðan stuttan tíma á Selfossi en fluttu árið 1961 að Arnarbæli í Ölfusi, voru bændur og bjuggu þar til ársins 1967. Þá fluttu þau aftur til Reykjavíkur, en þaðan til Eyja 1969 með fjögur börn sín og bjuggu í Fagradal 1972, en á Illugagötu 60 1979, síðar á Áshamri 22.
Þau Guðmundur skildu 1988 og Fjóla fluttist til Húsavíkur, bjó þar uns hún veiktist 1997 og flutti til Reykjavíkur. Þar bjó hún á Rekagranda 8, en lést á heimili dóttur sinnar og tengdasonar á Hellu 1998.
I. Maður Fjólu, (23. janúar 1957, skildu), var Guðmundur Guðnason trésmiður, bóndi, sjómaður, f. 30. apríl 1924 á Búðareyri við Reyðarfjörð, d. 18. janúar 1995 á Húsavík.
Börn þeirra:
1. Kristín Kolbrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og á Hellu, f. 14. október 1948, d. 10. janúar 2020. Maður hennar Samúel Guðmundsson.
2. Valey Guðmundsdóttir húsfreyja á Selfossi, f. 13. september 1950. Maður hennar Svavar Valdimarsson.
3. Guðmundur Guðmundsson sjómaður, síðar á Húsavík, f. 24. mars 1954. Kona hans Ólína María Steinþórsdóttir.
4. Halldór Guðmundsson sjómaður í Eyjum, bóndi í Suðursveit, trésmiður í Kópavogi, f. 29. nóvember 1955, d. 28. ágúst 2014. Barnsmóðir hans Anna Ísfold Kolbeinsdóttir. Kona hans Inga Lucia Þorsteinsdóttir.
5. Ingi Vigfús Guðmundsson öryrki, dvaldi á Kópavogshæli, síðar í sambýli að Skógarseli í Reykjavík, f. 28. júlí 1957, d. 16. desember 2004, ókvæntur.
6. Guðni Þorberg Guðmundsson sjómaður, f. 15. maí 1960, d. 17. febrúar 1981 í sjóslysi, er hann tók út af Heimaey VE við Þykkvabæjarfjöru.
7. Guðrún Unnur Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 5. mars 1964. Maður hennar, skildu, Guðjón Þ. Gíslason.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 14. júní 1998. Minning.
  • Þjóðskrá 1986.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.