Guðni Þorberg Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðni Þorberg Guðmundsson sjómaður fæddist 15. maí 1960 og lést 17. febrúar 1981.
Foreldrar hans voru Guðmundur Guðnason trésmiður, bóndi, sjómaður, f. 30. apríl 1924 á Eyri við Reyðarfjörð, d. 18. janúar 1995 á Húsavík, og kona hans Fjóla Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 21. júlí 1929 á Hellissandi, d. 8. júní 1998.

Börn Fjólu og Guðmundar:
1. Kristín Kolbrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og á Hellu, f. 14. október 1948, d. 10. janúar 2020. Maður hennar Samúel Guðmundsson.
2. Valey Guðmundsdóttir húsfreyja á Selfossi, f. 13. september 1950. Maður hennar Svavar Valdimarsson.
3. Guðmundur Guðmundsson sjómaður, síðar á Húsavík, f. 24. mars 1954. Kona hans Ólína María Steinþórsdóttir.
4. Halldór Guðmundsson sjómaður í Eyjum, bóndi í Suðursveit, trésmiður í Kópavogi, f. 29. nóvember 1955, d. 28. ágúst 2014. Barnsmóðir hans Anna Ísfold Kolbeinsdóttir. Kona hans Inga Lucia Þorsteinsdóttir.
5. Ingi Vigfús Guðmundsson öryrki, dvaldi á Kópavogshæli, síðar í sambýli að Skógarseli í Reykjavík, f. 28. júlí 1957, d. 16. desember 2004. Ókvæntur.
6. Guðni Þorberg Guðmundsson sjómaður, f. 15. maí 1960, d. 17. febrúar 1981 í sjóslysi, er hann tók út af Heimaey VE við Þykkvabæjarfjöru.
7. Guðrún Unnur Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 5. mars 1964. Maður hennar, skildu, Guðjón Þ. Gíslason.

Guðni var með foreldrum sínum, fylgdi þeim frá Selfossi að Arnarbæli í Ölfusi1961, til Reykjavíkur 1967 og þaðan til Eyja 1969. Hann var með þeim í Fagradal 1972 og á Illugagötu 60 1979.
Hann fórst í sjóslysi 1981, er Heimaey VE 1 rak upp í Þykkvabæjarfjöru og brotsjór tók tvo skipverja útbyrðis. Guðni var ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.