„Guðmundur Ingvarsson (Sunnudal)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðmundur Ingvarsson''' frá Minna-Hofi á Rangárvöllum, verkamaður, verslunarmaður fæddist þar 25. ágúst 1904 og lést 10. maí 1986.<br> Foreldrar hans voru Ingvar Ólaf...) |
m (Verndaði „Guðmundur Ingvarsson (Sunnudal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 2. apríl 2020 kl. 16:53
Guðmundur Ingvarsson frá Minna-Hofi á Rangárvöllum, verkamaður, verslunarmaður fæddist þar 25. ágúst 1904 og lést 10. maí 1986.
Foreldrar hans voru Ingvar Ólafsson bóndi, f. 26. apríl 1868 á Voðmúlastöðum í Landeyjum, d. 16. apríl 1942, og kona hans Sigríður Steinsdóttir frá Minna-Hofi, húsfreyja, ljósmóðir, f. þar 29. desember 1872, d. 13. maí 1956.
Bróðir Guðmundar var
1. Steinn Ingvarsson á Múla, bóndi, verkamaður, framfærslufulltrúi, ráðsmaður Sjúkrahússins, f. 23. október 1892 á Minna-Hofi, d. 1. mars 1983.
Guðmundur var með foreldrum sínum á Minna-Hofi í æsku.
Hann fluttist til Eyja 1930, var verkamaður, bjó í Langholti við Vestmannabraut 48A á því ári og við giftingu þeirra Clöru 1931. Hann var verkamaður hjá Ársæli Sveinssyni, bifreiðastjóri, síðar afgreiðslumaður í verslun Neytendafélagsins og í Kaupfélaginu.
Þau Clara giftu sig 1931, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu í Stakkagerði, fluttust að Minna-Hofi síðla árs 1932 og bjuggu þar hjá foreldrum Guðmundar til 1935.
Þau bjuggu í Framnesi við Vesturveg 3b 1935-1939, á Vesturhúsum vestri 1939-1946, bjuggu síðan og lengst í Sunnudal.
Guðmundur lést 1986 og Clara 1993.
I. Kona Guðmundar, (20. júní 1931), var Clara Lambertsen húsfreyja, f. 15. desember 1909 í Reykjavík, d. 6. júní 1993.
Börn þeirra:
1. Jóhann Ingvar Guðmundsson, f. 15. maí 1932 í Stakkagerði, d. 23. janúar 2002. Kona hans Guðbjörg Kristjánsdóttir.
2. Steinn Guðmundsson rennismiður, bifreiðasmiður, f. 15. maí 1933 á Minna-Hofi á Rangárvöllum. Kona hans Guðbjörg S. Petersen.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 17. júní 1993. Minning Clöru.
- Prestþjónustubækur.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.