„Erla Haraldsdóttir (Nikhól)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 21: | Lína 21: | ||
3. [[Guðný Hrefna Einarsdóttir]] húsfreyja, þjónustufulltrúi, f. 24. júlí 1955.
| 3. [[Guðný Hrefna Einarsdóttir]] húsfreyja, þjónustufulltrúi, f. 24. júlí 1955.

4. [[Ágúst Ómar Einarsson]] netagerðarmaður, bifvélavirki, smiður, f. 25. desember 1959 að Hólagötu 26.
| 4. [[Ágúst Ómar Einarsson]] netagerðarmaður, bifvélavirki, smiður, f. 25. desember 1959 að Hólagötu 26.

5. [[Einar Birgir Einarsson]] húsasmíðameistari, f. 23. desember 1960.
| 5. [[Einar Birgir Einarsson]] húsasmíðameistari, f. 23. desember 1960. Kona hans [[Guðrún Snæbjörnsdóttir]].

6. [[Halla Einarsdóttir (ljósmyndari)|Halla Einarsdóttir]] húsfreyja, ljósmyndari, f. 8. ágúst 1968. | 6. [[Halla Einarsdóttir (ljósmyndari)|Halla Einarsdóttir]] húsfreyja, ljósmyndari, f. 8. ágúst 1968. | ||
Útgáfa síðunnar 15. ágúst 2023 kl. 20:48
Guðbjörg Erla Haraldsdóttir frá Nikhól, húsfreyja, verslunarmaður, verkakona fæddist þar 21. júlí 1931 og lést 5. júní 2018 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Foreldrar hennar voru Haraldur Þorsteinsson frá Grímsstöðum í V-Landeyjum, verkamaður í Nikhól og á Grímsstöðum, f. 5. janúar 1902, d. 11. desember 1974, og kona hans Matthildur Málfríður Gísladóttir húsfreyja, f. 22. janúar 1898 í Norðurhjáleigu í Álftaveri, d. 31. mars 1976.
Börn Matthildar og Haraldar:
1. Þóra Haraldsdóttir húsfreyja, f. 4. apríl 1925 í Gerði, d. 13. apríl 2001.
2. Þorsteina Guðbjörg Haraldsdóttir, f. 14. júní 1926 í Nikhól, d. 27. mars 1927.
3. Gunnar Þorbjörn Haraldsson vélstjóri, húsvörður, f. 21. apríl 1928 í Nikhól, d. 30. desember 2010.
4. Óskar Haraldsson netagerðarmeistari, f. 7. ágúst 1929 í Nikhól, d. 22. ágúst 1985.
5. Guðbjörg Erla Haraldsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, verkakona, f. 21. júlí 1931 í Nikhól, d. 5. júní 2018..
Erla ólst upp hjá foreldrum sínum.
Hún nam við í Húsmæðraskólann á Laugarvatni 18 ára gömul og starfaði á Hótel Laugarvatni nokkur sumur, en stundaði annars verkakvenna- og verslunarstörf.
Guðbjörg Erla eignaðist tvö fyrstu börn sín með Einari á Grímsstöðum. Þau Einar bjuggu á Hólagötu 26 við fæðingu Ágústs Ómars 1959 og síðan.
Einar lést 1984. Erla bjó áfram á Hólagötu. Hún lést 2018 á Sjúkrahúsinu.
I. Maður Guðbjargar Erlu var Einar Ágústsson frá Bræðraborg, síðan í Ártúni, sjómaður, verkamaður, bifreiðastjóri, f. 13. apríl 1927, d. 18. september 1984.
Börn þeirra:
1. Viðar Einarsson verkamaður, f. 3. febrúar 1953 á Grímsstöðum.
2. Matthildur Einarsdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla, verkakona, f. 16. febrúar 1954 Grímsstöðum.
3. Guðný Hrefna Einarsdóttir húsfreyja, þjónustufulltrúi, f. 24. júlí 1955.
4. Ágúst Ómar Einarsson netagerðarmaður, bifvélavirki, smiður, f. 25. desember 1959 að Hólagötu 26.
5. Einar Birgir Einarsson húsasmíðameistari, f. 23. desember 1960. Kona hans Guðrún Snæbjörnsdóttir.
6. Halla Einarsdóttir húsfreyja, ljósmyndari, f. 8. ágúst 1968.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 13. júní 2018. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.