„Sigríður Sigurðardóttir (Uppsölum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 16: | Lína 16: | ||
II. Síðari maður hennar, (13. nóvember 1904), var [[Loftur Þorgeirsson (Uppsölum)|Loftur Þogeirsson]] útvegsbóndi, sjómaður, verkamaður á Uppsölum, f. 18. október 1878, d. 23. desember 1964.
| II. Síðari maður hennar, (13. nóvember 1904), var [[Loftur Þorgeirsson (Uppsölum)|Loftur Þogeirsson]] útvegsbóndi, sjómaður, verkamaður á Uppsölum, f. 18. október 1878, d. 23. desember 1964.

Börn þeirra:
| Börn þeirra:

3. [[Þórodda Vigdís Loftsdóttir (Bræðraborg)|Þórodda Vigdís Loftsdóttir]] húsfreyja í [[Bræðraborg]], f. 12. ágúst 1905, d. 29. júlí 1986, gift [[Valdimar Ástgeirsson|Valdimar Ástgeirssyni]] málara frá [[Litlibær|Litlabæ]].

4. [[Svanhvít Loftsdóttir (Uppsölum)|Svanhvít Loftsdóttir]] húsfreyja, f. 1. september 1909, d. 18. febrúar 1988, gift [[Þórður Kristinn Einarsson (Uppsölum)|Þórði Einarssyni]] sjómanni frá Stokkseyri, f. 31. mars 1906, drukknaði 1. mars 1928.

{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. |
Útgáfa síðunnar 30. mars 2016 kl. 20:51
Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja á Uppsölum, fæddist 4. mars 1873 í Búðarhólshjáleigu í A-Landeyjum og lést 13. apríl 1956.
Foreldrar hennar voru Sigurður Guðmundsson bóndi á Lágafelli í A-Landeyjum, f. 13. ágúst 1842, d. 11. mars 1905 á Uppsölum í Eyjum, og kona hans Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja á Lágafelli, f. 18. október 1839, d. 25. maí 1899.
Systir Sigríðar var Jórunn Sigurðardóttir vinnukona og barnfóstra á Löndum, f. 24. nóvember 1881, d. 8. júlí 1965.
Sigríður og Hreinn Þórðarson fluttust til Eyja 1898. Hún var húsfreyja í Sjólyst 1899, búandi ekkja á Uppsölum eystri í Eyjum 1901. Þar voru einnig Þórunn Sigríður Hreinsdóttir, dóttir hennar og Sigurður Guðmundsson faðir hennar.
Við manntal 1910 var hún gift húsfreyja á Uppsölum með Lofti Þogeirssyni manni sínum og dætrum þeirra Þóroddu Vigdísi og Svanhvíti og dóttur hennar Þórunni Sigríði. Þar voru einnig foreldrar Lofts, Þorgeir Magnússon og Málfríður Loftsdóttir.
Við manntal 1920 voru þau Loftur búandi á Uppsölum, ásamt Þórunni Sigríði dóttur hennar og Svanhvíti dóttur þeirra. Þá er Þórodda Vigdís vinnukona í Bræðraborg.
Sigríður á Uppsölum var tvígift:
I. Fyrri maður hennar, (8. maí 1898), var Hreinn Þórðarson á Uppsölum, f. 6. desember 1870, drukknaði við Bjarnarey 20. maí 1901.
Barn þeirra var:
1. Þórunn Sigríður Hreinsdóttir, f. 4. nóvember 1899, d. 27. júlí 1923.
2. Hreinn Hreinsson, f. 1901. Hann mun hafa dáið ungur.
II. Síðari maður hennar, (13. nóvember 1904), var Loftur Þogeirsson útvegsbóndi, sjómaður, verkamaður á Uppsölum, f. 18. október 1878, d. 23. desember 1964.
Börn þeirra:
3. Þórodda Vigdís Loftsdóttir húsfreyja í Bræðraborg, f. 12. ágúst 1905, d. 29. júlí 1986, gift Valdimar Ástgeirssyni málara frá Litlabæ.
4. Svanhvít Loftsdóttir húsfreyja, f. 1. september 1909, d. 18. febrúar 1988, gift Þórði Einarssyni sjómanni frá Stokkseyri, f. 31. mars 1906, drukknaði 1. mars 1928.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.