„Nói Kristjánsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Nói Kristjánsson''' trésmiður, skósmiður á Sólheimum, síðar innheimtumaður í Reykjavík fæddist 14. janúar 1894 á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum og...)
 
m (Verndaði „Nói Kristjánsson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. nóvember 2015 kl. 18:21

Nói Kristjánsson trésmiður, skósmiður á Sólheimum, síðar innheimtumaður í Reykjavík fæddist 14. janúar 1894 á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum og lést 21. nóvember 1966.
Foreldrar hans voru Kristján Jónsson bóndi á Voðmúlastöðum og í Auraseli, f. 23. mars 1857, d. 4. maí 1937, og kona hans Bóel Erlendsdóttir húsfreyja, f. 18. júní 1857, d. 2. september 1936.

Börn Bóelar og Kristjáns í Eyjum voru:
1. Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja á Sólheimum, síðar á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 30. september 1885, d. 12. mars 1958.
2. Guðleif Kristjánsdóttir húsfreyja á Jaðri, f. 13. október 1886, d. 22. janúar 1917.
3. Erlendur Kristjánsson smiður á Landamótum, f. 7. desember 1887, d. 11. september 1931.
4. Guðrún Kristjánsdóttir húsfreyja á Ekru, síðan í Reykjavík, f. 23. júní 1889, d. 8. júní 1960.
5. Nói Kristjánsson trésmiður, skósmiður á Sólheimum, f. 14. janúar 1894, d. 21. nóvember 1966.

Nói fluttist til Eyja 1920 og bjó á Sólheimum 1920-1922, fluttist þá til Reykjavíkur, var innheimtumaður þar. Hann lést 1966.

Kona hans, (16. maí 1920), var Anna Guðbjörg Jónína Ágústsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1898, d. 7. júni 1980.
Börn þeirra hér:
1. Guðleif Ágústa Nóadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2. ágúst 1920 á Sólheimun, d. 6. desember 1960.
2. Kristín Bóela Nóadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1923, d. 21. september 1989.
3. Theodór Nóason verslunarmaður í Reykjavík, f. 4. febrúar 1927, d. 5. júlí 2013.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.