„Magnús Helgason (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Magnús Helgason (Vesturhúsum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Magnús Eggert Helgason.JPG|thumb|200px|''Magnús Eggert Helgason.]] | |||
'''Magnús Eggert Helgason''' frá [[Vesturhús|Vesturhúsum-vestri]], skipstjóri, málari fæddist þar 29. desember 1932. <br> | '''Magnús Eggert Helgason''' frá [[Vesturhús|Vesturhúsum-vestri]], skipstjóri, málari fæddist þar 29. desember 1932. <br> | ||
Foreldrar hans voru [[Helgi Benónýsson (Vesturhúsum)|Helgi Björgvin Benónýsson]] bóndi, útgerðarmaður, f. 23. apríl 1900 í Bakkakoti í Skorradal, Borg., d. 19. ágúst 1985, og kona hans [[Nanna Magnúsdóttir (Vesturhúsum)|Nanna Magnúsdóttir]] frá Vesturhúsum, húsfreyja, f. þar 12. september 1905, d. 9. september 1975. | Foreldrar hans voru [[Helgi Benónýsson (Vesturhúsum)|Helgi Björgvin Benónýsson]] bóndi, útgerðarmaður, f. 23. apríl 1900 í Bakkakoti í Skorradal, Borg., d. 19. ágúst 1985, og kona hans [[Nanna Magnúsdóttir (Vesturhúsum)|Nanna Magnúsdóttir]] frá Vesturhúsum, húsfreyja, f. þar 12. september 1905, d. 9. september 1975. | ||
Lína 35: | Lína 36: | ||
[[Flokkur: Iðnaðarmenn]] | [[Flokkur: Iðnaðarmenn]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar á Vesturhúsum | [[Flokkur: Íbúar á Vesturhúsum]] | ||
[[Flokkur: Íbúar á Stað]] | [[Flokkur: Íbúar á Stað]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Búastaðabraut]] | [[Flokkur: Íbúar við Búastaðabraut]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Ásaveg]] | [[Flokkur: Íbúar við Ásaveg]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Helgafellsbraut]] | [[Flokkur: Íbúar við Helgafellsbraut]] |
Núverandi breyting frá og með 6. júlí 2020 kl. 16:21
Magnús Eggert Helgason frá Vesturhúsum-vestri, skipstjóri, málari fæddist þar 29. desember 1932.
Foreldrar hans voru Helgi Björgvin Benónýsson bóndi, útgerðarmaður, f. 23. apríl 1900 í Bakkakoti í Skorradal, Borg., d. 19. ágúst 1985, og kona hans Nanna Magnúsdóttir frá Vesturhúsum, húsfreyja, f. þar 12. september 1905, d. 9. september 1975.
Börn Nönnu og Helga:
1. Jórunn Guðný Helgadóttir húsfreyja, f. 11. júní 1929 á Vesturhúsum.
2. Magnús Helgason, f. 10. desember 1930 á Vesturhúsum, d. 30. janúar 1931.
3. Magnús Eggert Helgason skipstjóri, málari í Reykjavík, f. 29. desember 1932 á Vesturhúsum.
4. Jóhannes Þorsteinn Helgason fiskimatsmaður, efnisvörður í Reykjavík, f. 25. ágúst 1934 á Vesturhúsum.
5. Guðmunda Rósa Helgadóttir húsfreyja í Stykkishólmi, f. 21. mars 1936 á Vesturhúsum.
6. Drengur, f. 22. janúar 1938 á Vesturhúsum, d. 25. janúar 1938.
7. Hannes Helgason vélstjóri, póstur í Reykjavík, f. 13. mars 1941 á Vesturhúsum.
Magnús var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum 1949, fiskimannaprófi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík eftir einn námsvetur 1953. Hann lærði málaraiðn hjá Tryggva Ólafssyni 1958-1962 og lauk prófi í Iðnskólanum og sveinsprófi 1962.
Magnús stundaði sjómennsku og var um skeið skipstjóri á Hafdísi ÍS 75, sem gerð var út af Helga föður hans. Þá var hann skipverji á Dísarfellinu í siglingum í tæp tvö ár. Eftir flutning til Reykjavíkur við Gos vann hann við iðn sína.
Þau Herdís giftu sig 1955, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í byrjun á Vesturhúsum-vestri, síðan á Stað, en þá á Búastaðabraut 6 í Eyjum, síðan í Reykjavík um hálfs árs skeið, þá að Þrastarnesi 17 í Garðabæ, en síðast í Funalind 7 í Kópavogi.
Herdís lést 2001. Magnús býr nú með Ester dóttur sinni að
Berjavöllum 3 í Hafnarfirði.
I. Kona Magnúsar Eggerts, (29. október 1955), var Sigurbjörg Herdís Eggertsdóttir húsfreyja, f. 5. september 1932 á Sæbóli í Haukadal í Dýrafirði, d. 23. september 2001.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Magnússon verkstjóri í Álverinu í Straumsvík, f. 5. janúar 1956. Kona hans Ingibjörg Hreiðarsdóttir.
2. Ester Magnúsdóttir húsfreyja, læknaritari við Heilsugæsluna í Breiðholti, f. 5. ágúst 1964, ógift.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
- Magnús.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.