„Sigurður Sigurðsson (Jónshúsi)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Sigurður Sigurðsson''' bóndi, verkamaður fæddist 22. febrúar 1858 á Hlíðarenda í Fljótshlíð og lést 6. apríl 1941 í Sigtúni.<br> Foreldrar hans voru Þórunn E...) |
m (Verndaði „Sigurður Sigurðsson (Jónshúsi)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 27. nóvember 2015 kl. 13:56
Sigurður Sigurðsson bóndi, verkamaður fæddist 22. febrúar 1858 á Hlíðarenda í Fljótshlíð og lést 6. apríl 1941 í Sigtúni.
Foreldrar hans voru Þórunn Eyjólfsdóttir frá Nikulásarhúsi, þá vinnukona á Hlíðarenda, f. 1822, og Sigurður Nikulásson vinnumaður ,,skilinn frá konu“.
Þórunn móðir Sigurðar og Una Guðmundsdóttir húsfreyja í London voru hálfsystur, sammæddar.
Sigurður var tökubarn á Hlíðarenda 1860, vinnumaður í Hallgeirsey í A-Landeyjum 1880.
Hann kom til Eyja frá Hallgeirsey í A-Landeyjum 1881, var vinnumaður á Gjábakka í lok ársins og 1882, í Godthaab 1883 og 1884, kominn að Jónshúsi 1885, vinnumaður.
Guðríður fluttist að Jónshúsi úr Mýrdal 1886. Þau eignuðust Þórunni 1889 í Jónshúsi, en hún var send í fóstur að London á því ári. Þau eignuðust Ólaf 1890 í Jónshúsi. Guðríður var vinnukona í Túni í lok ársins með Ólaf hjá sér, en Þórunn var í Landakoti og Sigurður vinnumaður í Jónshúsi.
Í lok árs 1891 var Sigurður vinnumaður hjá Ólöfu Lárusdóttur og Guðjóni Björnssyni á Kirkjubæ, en Guðríður var með Ólaf í Túni og Þórunn var komin í varanlegt fóstur í London.
Þau voru vinnufólk á Kirkjubæ 1892 með Ólaf hjá sér.
Hjónin fluttust frá Kirkjubæ með Ólaf 1895 og stefndu á Reyðarfjörð. Þau voru bændahjón í Sigurðarhúsi á Eskifirði 1901, í Kristjánshúsi þar 1910, misstu Ólaf á því ári, voru í Húsi Sigurðar og Árna þar 1920.
Þau fluttust til Eyja 1929, bjuggu í Vallartúni 1930, í Sigtúni 1940.
Sigurður lést 1941. Guðríður var að síðustu í Gvendarhúsi og lést þar 1943.
Kona Sigurðar, (16. maí 1898), var Guðríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 4. október 1860, d. 1. nóvember 1943.
Börn þeirra voru:
1. Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 14. janúar 1889, d. 22. nóvember 1948.
2. Ólafur Sigurðsson, f. 12. júlí 1890, d. 1910, jarðsettur 5. maí.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.