„Yngvi Björgvin Ögmundsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Yngvi Björgvin Ögmundsson''', verkamaður, kaupmaður fæddist 28. apríl 1943 í Landakoti, d. 20. júlí 2016.<br> Foreldrar hans voru Ögmundur Sigurðsson frá Fagurhól, matsveinn, útgerðarmaður, skipstjóri, f. þar 17. janúar 1911, d. 22. september 1994, og kona hans Jóhanna ''Svava'' Ingvarsdóttir frá Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 5. ágúst 1911, d. 16....)
 
m (Verndaði „Yngvi Björgvin Ögmundsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 12. desember 2024 kl. 13:48

Yngvi Björgvin Ögmundsson, verkamaður, kaupmaður fæddist 28. apríl 1943 í Landakoti, d. 20. júlí 2016.
Foreldrar hans voru Ögmundur Sigurðsson frá Fagurhól, matsveinn, útgerðarmaður, skipstjóri, f. þar 17. janúar 1911, d. 22. september 1994, og kona hans Jóhanna Svava Ingvarsdóttir frá Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 5. ágúst 1911, d. 16. maí 1992.

Börn Svövu og Ögmundar:
1. Sigurður Þór Ögmundsson sjómaður, f. 8. nóvember 1940 á Landakoti.
2. Ingibjörg Ögmundsdóttir, f. 27. febrúar 1942 á Landakoti, d. 13. júlí 1942.
3. Yngvi Björgvin Ögmundsson verkamaður, kaupmaður, f. 28. apríl 1943 í Landakoti, d. 20. júlí 2016.
4. Oddný Ögmundsdóttir húsfreyja, bókhaldari, f. 8. júní 1944 í Landakoti.
5. Guðbjörg Ögmundsdóttir deildarstjóri á skrifstofu Varnarliðsins á Keflavíkurvelli, f. 20. júlí 1951 á Sjúkrahúsinu.

Þau Hafdís giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Höfðaveg 24.

I. Kona Yngva er Hafdís Daníelsdóttir, húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður, rak verslunina Heimaver, innheimtumaður hjá Bifreiðastöðinni, f. 15. apríl 1947.
Börn þeirra:
1. Birkir Yngvason, f. 15. apríl 1967.
2. Óðinn Yngvason, f. 21. júlí 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.