Svava Ingvarsdóttir (Landakoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Svava Ingvarsdóttir húsfreyja fæddist 5. ágúst 1911 og lést 16. maí 1992.
Foreldrar hans voru Ingvar Ingvarsson frá Neðri-Dal undir V-Eyjafjöllum, bóndi, f. 21. apríl 1874, d. 12. janúar 1955, og kona hans Guðbjörg Ólafsdóttir frá Hellishólum í Fljótshlíð, húsfreyja, f. 8. mars 1875, d. 8. febrúar 1950.

Móðir Ingvars í Neðri-Dal var Ingibjörg Samúelsdóttir húsfreyja, sem var fyrri kona Jóns Vigfúsar Vigfússonar, síðar í Túni. Þau skildu.
Dætur þeirra voru:
1. Ingibjörg Jónsdóttir vinnukona, f. 12. febrúar 1859 í Krókatúni, d. 24. júlí 1940.
2. Pálína Jónsdóttir, f. 23. mars 1860 í Krókatúni, d. 16. júlí 1882 úr mislingum.
3. Sigríður Jónsdóttir, f. 1861 í Krókatúni, d. 15. júlí 1882 úr mislingum.

Börn Ingvars og Guðbjargar í Eyjum voru:
1. Þorgríma Lilja Ingvarsdóttir sjúkrahússstarfsmaður, saumakona, f. 28. júlí 1907, d. 10. janúar 1996. Hún var um stutt skeið í Eyjum, en fluttist til Lovísu systur sinnar og bjó þar.
2. Samúel Ingvarsson sjómaður, verkamaður, bóndi fæddist 7. september 1908 og lét 15. desember 1993.
3. Tryggvi Ingvarsson á Stóru-Heiði, f. 27. janúar 1910, d. 3. maí 1945, fórst við störf í Hraðfrystistöðinni.
4. Jóhanna Svava Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1911, d. 16. maí 1992.
5. Leó Ingvarsson sjómaður, járnsmiður, f. 22. september 1913, d. 29. nóvember 2005.
6. Ingibjörg Fjóla Ingvarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 11. janúar 1918, d. 7. apríl 2010.

Svava var með foreldrum sínum í Neðridal 1920 og 1930.
Þau Ögmundur bjuggu í Landakoti við giftingu sína 1940 og eignuðust Sigurð Þór í nóvember á því ári. Þau bjuggu síðan í Landakoti, en fluttu að Hásteinsvegi 49 1945-1946, fluttu sig á Strembugötu 22 1963. Þau færðu sig á Strembugötu 4 um 1979 og bjuggu þar síðan.
Svava lést 1992 og Ögmundur 1994.

Maður Svövu, (5. október 1940), var Ögmundur Sigurðsson matsveinn, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 17. janúar 1911, d. 22. september 1994.
Börn þeirra:
1. Sigurður Þór Ögmundsson sjómaður, f. 8. nóvember 1940 í Landakoti.
2. Ingibjörg Ögmundsdóttir, f. 27. febrúar 1942 í Landakoti, d. 13. júlí 1942.
3. Yngvi Björgvin Ögmundsson verkamaður, kaupmaður, f. 28. apríl 1943 í Landakoti.
4. Oddný Ögmundsdóttir húsfreyja, bókhaldari, f. 8. júní 1944 í Landakoti.
5. Guðbjörg Ögmundsdóttir deildarstjóri, f. 20. júlí 1951 á Sj.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.