„Óskar Matthíasson (Byggðarenda)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(14 millibreytingar ekki sýndar frá 6 notendum)
Lína 1: Lína 1:
Óskar Matthíasson fæddist í Vestmannaeyjum 22. mars 1921 í [[Garðsauki|Garðsauka]].
[[Mynd:Oskar Matthíasson.jpg|thumb|300px|Óskar]]
'''Óskar Matthíasson''' fæddist í Vestmannaeyjum 22. mars 1921 í [[Garðsauki|Garðsauka]] og lést 21. desember 1992. Foreldrar hans voru hjónin [[Þórunn Júlía Sveinsdóttir]] og [[Matthías Gíslason]] á [[Byggðarendi|Byggðarenda]].  


Óskar hóf sinn sjómannsferil þegar hann var 16 ára á [[Emma|Emmu]] með [[Ragnar Þorvaldsson|Ragnari Þorvaldssyni]]. Sagði Óskar eitt sinn að hann hefði verið rekinn í land eftir um hálfan mánuð fyrir sjóveiki og annan ræfildóm. Hann hélt sig þó ekki nema í eitt ár frá sjónum. Hann var háseti og vélstjóri á hinum ýmsu bátum fram til ársins 1944 þegar hann hóf formannsferil sinn.
Óskar var kvæntur [[Þóra Sigurjónsdóttir|Þóru Sigurjónsdóttur]] og eignuðust þau 7 börn.
 
* [[Matthías Óskarsson]]
* [[Sigurjón Óskarsson]]
* [[Kristján Valur Óskarsson]]
* [[Óskar Þór Óskarsson]]
* [[Leó Óskarsson]]
* [[Þórunn Óskarsdóttir (hjúkrunarfræðingur)|Þórunn Óskarsdóttir]]
* [[Ingibergur Óskarsson]]
 
== Sjómannsferill ==
 
Óskar hóf sinn sjómannsferil þegar hann var 17 ára á [[Emma VE-219|Emmu]] með [[Ragnar Þorvaldsson (Litla-Hvammi)|Ragnari Þorvaldssyni]]. Sagði Óskar eitt sinn að hann hefði verið rekinn í land eftir um hálfan mánuð fyrir sjóveiki og annan ræfildóm. Hann hélt sig þó ekki nema í eitt ár frá sjónum. Hann var háseti og vélstjóri á hinum ýmsu bátum fram til ársins 1944 þegar hann hóf formannsferil sinn. Árið 1944 byrjaði Óskar sem skipsstjóri á Glað, síðan Skuldinni og loks aftur með Glað. En 1946 keypti hann Nönnu, síðan Leó og Þórunni Sveinsdóttur.
 
Óskar var [[Aflakóngar|aflakóngur]] Vestmannaeyja árið 1965, 1966, 1969 og 1970.
 
[[Óskar Kárason]] samdi formannavísu um Óskar:
:''Óskar Matta ýtinn mjög
:''afla föng að kanna.
:''Þó að hristi stormur stög,
:''strauminn mylur Nanna.
 
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
:''Óskar ég fylkinn fara
:''frækinn veit stjórann sækinn,
:''Mattason kólgu klatta
:''klýfur á Leó stífur
:''hrönn, þegar æst í önnum,
:''æðir um veiði-svæði,
:''spyrðlinga marga myrðir,
:''meiðurinn býsna veiðinn.
 
== Myndir ==
<Gallery>
Mynd:KG-mannamyndir 1390.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 12399.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 15540.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 15641.jpg
 
</gallery>


Óskar var [[Aflakóngar|aflakóngur]] Vestmannaeyja árið 1965 og 1966 og 1969 og 1970.
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.}}
* Óskar Kárason. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950.
* Óskar Kárason. ''Formannavísur II''. Vestmannaeyjum, 1956.
* Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.
* Þórarinn Ingi Ólafsson. http://www.eyjar.is/ingiol}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Aflakóngar]]
[[Flokkur:Aflakóngar]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Brekastíg]]

Núverandi breyting frá og með 20. mars 2021 kl. 11:21

Óskar

Óskar Matthíasson fæddist í Vestmannaeyjum 22. mars 1921 í Garðsauka og lést 21. desember 1992. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Júlía Sveinsdóttir og Matthías Gíslason á Byggðarenda.

Óskar var kvæntur Þóru Sigurjónsdóttur og eignuðust þau 7 börn.

Sjómannsferill

Óskar hóf sinn sjómannsferil þegar hann var 17 ára á Emmu með Ragnari Þorvaldssyni. Sagði Óskar eitt sinn að hann hefði verið rekinn í land eftir um hálfan mánuð fyrir sjóveiki og annan ræfildóm. Hann hélt sig þó ekki nema í eitt ár frá sjónum. Hann var háseti og vélstjóri á hinum ýmsu bátum fram til ársins 1944 þegar hann hóf formannsferil sinn. Árið 1944 byrjaði Óskar sem skipsstjóri á Glað, síðan Skuldinni og loks aftur með Glað. En 1946 keypti hann Nönnu, síðan Leó og Þórunni Sveinsdóttur.

Óskar var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1965, 1966, 1969 og 1970.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Óskar:

Óskar Matta ýtinn mjög
afla föng að kanna.
Þó að hristi stormur stög,
strauminn mylur Nanna.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Óskar ég fylkinn fara
frækinn veit stjórann sækinn,
Mattason kólgu klatta
klýfur á Leó stífur
hrönn, þegar æst í önnum,
æðir um veiði-svæði,
spyrðlinga marga myrðir,
meiðurinn býsna veiðinn.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.
  • Þórarinn Ingi Ólafsson. http://www.eyjar.is/ingiol