Brynjar Kristjánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. september 2024 kl. 17:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. september 2024 kl. 17:49 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Brynjar Kristjánsson.

Brynjar Kristjánsson framreiðslumaður, stálskipasmiður, kennari fæddist 13. október 1968 í Eyjum.
Foreldrar hans Kristján Guðni Sigurjónsson sjómaður, skipstjóri, f. 3. ágúst 1931 á Ólafsfirði, d. 15. desember 1983, og kona hans Sigurveig Margrét Ólafsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, verkakona, f. 14. ágúst 1929, d. 5. júní 1995.

Barn Kristjáns Guðna og Þórunnar Magnúsdóttur:
1. Magnús Þór Kristjánsson, f. 15. janúar 1947. Hann varð kjörbarn móðurforeldra sinna undir nafninu Magnús Þór Magnússon.
Börn Margrétar og Kristjáns Guðna:
2. Ólafur Örn Kristjánsson vélfræðingur í Ástralíu, f. 1. apríl 1948 á Siglufirði.
3. Sigurjón Marvin Kristjánsson vélstjóri, byggingatæknifræðingur í Noregi, f. 7. júní 1952 að Hásteinsvegi 7.
4. Anna María Kristjánsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 10. desember 1953 að Hásteinsvegi 7.
5. Hrafnhildur Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja, vekakona í Kópavogi, f. 26. apríl 1955 að Hásteinsvegi 7.
6. Trausti Kristjánsson stýrimaður, f. 20. september 1956.
7. Fanney Harða Guðmunda Kristjánsdóttir húsfreyja í Borgarnesi, f. 16. ágúst 1958.
8. Kristján Kristjánsson vélstjóri, rafvirkjameistari í Reykjavík, f. 18. október 1959.
9. Margrét Elísabet Kristjánsdóttir húsfreyja, leikskólakennari í Eyjum, f. 26. nóvember 1962.
10. Bjarki Kristjánsson stýrimaður í Eyjum, f. 18. febrúar 1964 í Birtingarholti.
11. Brynjar Kristjánsson stálskipasmiður í Eyjum, f. 13. október 1968.

Þau Ragnheiður giftu sig 1992, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Þau Sigríður Halldóra giftu sig 2012, bjuggu um skeið í Eyjum. þau skildu.
Þau Hrefna Björk hófu sambúð, hafa ekki eignast börn saman.

I. Kona Brynjars, (15. ágúst 1992, skildu), er Ragnheiður Borgþórsdóttir, húsfreyja, húð- og förðunarfræðingur, kennari, f. 28. maí 1967.
Barn þeirra:
1. Silja Elsabet Brynjarsdóttir, óperusöngkona í Leibzig, f. 15. ágúst 1991.

II. Kona Brynjars, (1. janúar 2012, skildu), er Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir, húsfreyja, bókasafns- og upplýsingafræðingur, f. 14. maí 1975. Foreldrar hennar Gunnar Bjarnason, bóndi á Hurðarbaki í Reykholtsdal, f. 21. nóvember 1953, og Ásthildur Thorsteinsson, f. 8. júní 1953.
Börn þeirra:
2. Marinó Bjarki Brynjarsson, f. 21. maí 2009 á Akranesi.
3. Kristján Guðni Brynjarsson, f. 7. ágúst 2011 í Eyjum.

III. Sambúðarkona Brynjars er Hrefna Björk Gylfadóttir, launafulltrúi, f. 23. maí 1970. Foreldrar hennar Gylfi Borgþór Guðfinnsson, f. 25. september 1947, d. 5. febrúar 2003, og Bryndís Ragnarsdóttir, f. 28. febrúar 1951, d. 15. ágúst 2009.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.