Unnur Vilmundardóttir (Hjarðarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Unnur Vilmundardóttir.

Unnur Vilmundardóttir frá Hjarðarholti við Vestmannabraut 69, húsfreyja fæddist 21. nóvember 1915 í Skúr (manntal 1915) og lést 14. ágúst 1999.
Foreldrar hennar voru Vilmundur Friðriksson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 19. september 1883, d. 20. maí 1923, og kona hans Þuríður Pálína Pálsdóttir húsfreyja, f. 23. júlí 1890, d. 17. nóvember 1945.








ctr
Fjölskyldan frá Hjarðarholti.

Aftari röð frá v. Jóhann Vilmundarson, Kristinn Vilmundarson, Karl Vilmundarson, Skarphéðinn Vilmundarson, Ingibergur Vilmundarson. Fremri röð frá v. Lilja Vilmundardóttir, Laufey Vilmundardóttir, Pálína Þuríður Pálsdóttir móðir þeirra, Unnur Vilmundardóttir og Fjóla Vilmundardóttir.
Óþekktur ljósmyndari. Myndin er í eigu Sigurðar Kristinssonar Vilmundarsonar.

Börn Þuríðar og Vilmundar:
1. Karl Friðrik Vilmundarson, f. 6. desember 1909, d. 2. maí 1983.
2. Kristinn Eyjólfur Vilmundarson, f. 2. febrúar 1911, d. 24. desember 1945.
3. Skarphéðinn Vilmundarson, f. 25. janúar 1912, d. 28. júlí 1971.
4. Laufey Vilmundardóttir, f. 1. júní 1914, d. 21. febrúar 1979.
5. Hannes Vilmundarson, f. 1914, d. 3. desember 1914, 7 vikna gamall.
6. Unnur Vilmundardóttir, f. 21. nóvember 1915, d. 14. ágúst 1999.
7. Fjóla Vilmundardóttir, f. 13. janúar 1917, d. 6. apríl 1998.
8. Ingibergur Vilmundarson, f. 15. nóvember 1918, d. 29. ágúst 1986.
9. Jóhann Vilmundarson, f. 24. janúar 1921, d. 4. september 1995.
10. Lilja Vilmundardóttir, f. 21. mars 1922, d. 25. mars 2008.
11. Rósa Vilmundardóttir, f. 21. mars 1922, d. 27. mars 1922.

Unnur var með foreldrum sínum, í Skúr við skírn 1915, síðan í Hjarðarholti. Faðir hennar lést, er hún var á áttunda árinu. Hún var með móður sinni til 1931, en flutti þá til Reykjavíkur .
Þau Jóakim giftu sig 1942, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Urðarstíg 7 í Hafnarfirði, frá 1949 á Krosseyrarvegi 5b þar, en á Hjallabraut 33 frá 1990.
Unnur lést 1999 og Jóakim 2003.

I. Maður Unnar, (17. október 1942), var Jóakim Pétursson sjómaður, stýrimaður, verkstjóri, fiskimatsmaður, vigtarmaður, f. 10. janúar 1914 á Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd, Gull., d. 27. nóvember 2003. Foreldrar hans voru Pétur Jóakimsson, f. 9. september 1874, d. 10. júlí 1963 og kona hans Agnes Felixdóttir húsfreyja, f. 12. júní 1872, d. 27. mars 1962.
Börn þeirra:
1. Pétur Jóakimsson vélvirki, f. 4. mars 1943, d. 24. september 2003.
2. Sigurður Jóakimsson trásmiður, f. 19. mars 1947. Kona hans Kristrún Böðvarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.