Fjóla Vilmundardóttir (Hjarðarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Fjóla Vilmundardóttir frá Hjarðarholti við Vestmannabraut 69, húsfreyja fæddist þar 13. janúar 1917 og lést 6. apríl 1998 á Borgarspítalanum.
Foreldrar hennar voru Vilmundur Friðriksson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 19. september 1883, d. 20. maí 1923, og kona hans Þuríður Pálína Pálsdóttir húsfreyja, f. 23. júlí 1890, d. 17. nóvember 1945.


ctr
Fjölskyldan frá Hjarðarholti.

Aftari röð frá v. Jóhann Vilmundarson, Kristinn Vilmundarson, Karl Vilmundarson, Skarphéðinn Vilmundarson, Ingibergur Vilmundarson. Fremri röð frá v. Lilja Vilmundardóttir, Laufey Vilmundardóttir, Pálína Þuríður Pálsdóttir móðir þeirra, Unnur Vilmundardóttir og Fjóla Vilmundardóttir.
Óþekktur ljósmyndari. Myndin er í eigu Sigurðar Kristinssonar Vilmundarsonar.

Börn Þuríðar og Vilmundar:
1. Karl Friðrik Vilmundarson, f. 6. desember 1909, d. 2. maí 1983.
2. Kristinn Eyjólfur Vilmundarson, f. 2. febrúar 1911, d. 24. desember 1945.
3. Skarphéðinn Vilmundarson, f. 25. janúar 1912, d. 28. júlí 1971.
4. Laufey Vilmundardóttir, f. 1. júní 1914, d. 21. febrúar 1979.
5. Hannes Vilmundarson, f. 1914, d. 3. desember 1914, 7 vikna gamall.
6. Unnur Vilmundardóttir, f. 21. nóvember 1915, d. 14. ágúst 1999.
7. Fjóla Vilmundardóttir, f. 13. janúar 1917, d. 6. apríl 1998.
8. Ingibergur Vilmundarson, f. 15. nóvember 1918, d. 29. ágúst 1986.
9. Jóhann Vilmundarson, f. 24. janúar 1921, d. 4. september 1995.
10. Lilja Vilmundardóttir, f. 21. mars 1922, d. 25. mars 2008.
11. Rósa Vilmundardóttir, f. 21. mars 1922, d. 27. mars 1922.

Fjóla var með foreldrum sínum fyrstu 6 ár ævinnar, en faðir hennar lést 1823.
Hún var með móður sinni 1930 og flutti til Reykjavíkur með henni 1934 og bjó þar síðan.
Þau Sveinn Helgi giftu sig 1944, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu síðast í Heiðargerði 61.
Sveinn Helgi lést 1970. Fjóla bjó síðast á Meistaravöllum 31. Hún lést 1998.

I. Maður Fjólu, (29. nóvember 1944), var Sveinn Helgi Sigurðsson frá Enni við Blönduós, húsgagnasmiður, f. 7. júní 1918, d. 10. október 1970. Foreldrar hans voru Sigurður Sveinsson bóndi, f. 2. desember 1883, d. 25. febrúar 1924 og kona hans Halldóra Sigríður Ingimundardóttir húsfreyja, f. 19. maí 1896, d. 23. nóvember 1967.
Börn þeirra:
1. Þyrí Dóra Sveinsdóttir snyrtifræðingur, f. 18. febrúar 1945, d. 11. nóvember 2020. Maður hennar Kjartan Welding Ágústsson.
2. Sigurður Helgi Sveinsson, f. 15. september 1953, d. 18. maí 2018.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.