Sveinn Þorsteinsson (Gunnarshólma)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Sveinn Þorsteinsson frá Gunnarshólma, starfsmaður Mýrdalshrepps, fæddist þar 14. okóber 1950.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Jónsson frá Hafnarfirði, verslunarmaður, verkamaður, f. 14. janúar 1924 í Reykjavík, d. 13. október 2007, og kona hans Kristín Vestmann Valdimarsdóttir frá Gunnarshólma, húsfreyja, f. 23. júlí 1923 á Brekku við Faxastíg 4, d. 29. desember 1993.

Börn Kristínar og Þorsteins:
1. Guðrún Elísabet Lára Þorsteinsdóttir, f. 5. september 1943 á Gunnarshólma, d. 12. janúar 2002.
2. Þorsteina Jóna Þorsteinsdóttir, f. 18. janúar 1945 á Gunnarshólma.
3. Elías Kristinn Þorsteinsson, f. 22. febrúar 1946 á Gunnarshólma.
4. Sveinn Þorsteinsson, f. 14. október 1950 á Gunnarshólma.
5. Anna Sigríður Þorsteinsdóttir, f.19. júlí 1957 á Gunnarshólma, d. 7. nóvember 2006.
6. Vilborg Þorsteinsdóttir, f. 18. ágúst 1960 á Sjúkrahúsinu.
7. Þorsteinn Þorsteinsson, f. 8. nóvember 1962 á Gunnarshólma.
8. Hrefna Þorsteinsdóttir, f. 18. janúar 1966 á Helgafellsbraut 18.

Þau Guðrún giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Hafdís giftu sig, eiga tvö börn. Þau búa í Vík í Mýrdal.

I. Fyrrum kona Sveins var Guðrún Eyland frá Akureyri, húsfreyja, f. 2. febrúar 1951, d. 6. júlí 2024. Foreldrar hennar Gísli Jónsson Eyland , f. 27. júní 1886, d. 27. ágúst 1972, og Ásdís Eva Jónsdóttir, f. 7. ágúst 1911, d. 5. október 1960.
Börn þeirra:
1. Gísli Eyland, f. 2. ágúst 1973.
2. Kristín Eva Eyland, f. 13. ágúst 1974.

II. Kona Sveins er Hafdís Eggertsdóttir úr Álftaveri, V.-Skaft., húsfreyja, verkakona, skrifstofumaður, f. 19. september 1953. Foreldrar hennar Matthías Eggert Oddsson, bóndi í Hraungerði í Álftaveri, f. 21. maí 1905, d. 27. júní 1981, og kona hans Pálína Pálsdóttir, húsfreyja, f. 1. nóvember 1919, d. 2. maí 2003.
Börn þeirra:
3. Laufey Jóna Sveinsdóttir, f. 5. desember 1978.
4. Matthildur Sveinsdóttir, f. 11. nóvember 1982.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.