Sigríður Jónsdóttir (Túni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Jónsdóttir frá Túni, heimasæta fæddist 1861 og lést 15. júlí 1882 úr mislingum.
Foreldrar hennar voru Jón Vigfússon bóndi í Krókatúni u. Eyjafjöllum, síðar bóndi í Túni, f. 12. september 1836, d. 1. mars 1908, og fyrri kona hans Ingibjörg Samúelsdóttir húsfreyja, f. 26. nóvember 1836, d. 17. júní 1917.
Fósturmóðir hennar var Guðrún Þórðardóttir húsfreyja í Túni.

Börn Jóns og Ingibjargar Samúelsdóttur:
1. Ingibjörg Jónsdóttir vinnukona, f. 12. febrúar 1859, d. 24. júlí 1940.
2. Pálína Jónsdóttir í Túni, f. 23. mars 1860 í Krókatúni u. Eyjafjöllum, d. 1882 í mislingafaraldri.
3. Sigríður Jónsdóttir í Túni, f. 1861 í Krókatúni u. Eyjafjöllum, d. 1882 í mislingafaraldri.

Börn Jóns og Guðrúnar Þórðardóttur voru:
4. Þórunn Jónsdóttir, tvíburi, húsfreyja, saumakona og veitingakona í Þingholti, f. 26. nóvember 1870, d. 11. apríl 1951.
5. Jónína Jónsdóttir, tvíburi, f. 26. nóvember 1870, d. 18. desember 1871 úr kíghósta.
6. Vigfús Jónsson útgerðarmaður og formaður í HoltI, f. 14. júní 1872, d. 26. apríl 1943.
7. Guðjón Jónsson bóndi og líkkistusmiður á Oddsstöðum, f. 27. desember 1874, d. 25. október 1959.
8. Jóhann Jónsson útgerðarmaður, formaður og smiður á Brekku, f. 20. maí 1877, d. 13. janúar 1931.
9. Guðríður Karítas Jónsdóttir, f. 15. júlí 1879, d. 5. október 1886.
10. Sigurlín húsfreyja í Túni, f. 21. júlí 1882, d. 8. september 1935.

Sonur Guðrúnar með Sigurði Ólafssyni bónda í Húsagarði í Landsveit, Rang.:
11. Friðrik Sigurðsson sjómaður á Kalmanstjörn í Höfnum, Gull. 1910, f. 15. janúar 1857 í Húsagarði í Landsveit, d. 25. desember 1918.

Sigríður var með foreldrum sínum, en þau skildu. Hún var flutt til föður síns og Guðrúnar Þórðardóttur að Túni 1869. Hún var með þeim til dánardægurs 1882, en þá lést hún úr mislingum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.