Ingvar Ingvarsson (Neðri-Dal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingvar Ingvarsson bóndi í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, síðar í dvöl í Eyjum, bóndi fæddist 21. apríl 1874 og lést 12. janúar 1955.
Foreldrar hans voru Ingvar Hallvarðsson óðalsbóndi í Neðri-Dal, f. 8. janúar 1839, d. 18. nóvember 1919, og bústýra hans Ingibjörg Samúelsdóttir, f. 26. nóvember 1836, d. 17. júní 1917.

Ingvar var með foreldrum sínum í Neðri-Dal 1880 og 1890.
Þau Guðbjörg giftu sig 1898, eignuðust sjö börn, en misstu eitt þeirra á fimmta ári þess. Þau bjuggu í Selshjáleigu í Landeyjum 1901, í Neðri-Dal 1910 og en 1945, en farin þaðan 1946.
Þau Guðbjörg fluttu til Jóhönnu Svöfu dóttur sinnar að Hásteinsvegi 49, líklega 1946.
Guðbjörg lést 1950 og Ingvar 1955.

I. Kona Ingvars, (1898), var Guðbjörg Ólafsdóttir húsfreyja, f. 8. mars 1875, d. 8. febrúar 1950.
Börn Guðbjargar og Ingvars í Eyjum voru:
1. Þorgríma Lilja Ingvarsdóttir sjúkrahússstarfsmaður, saumakona, f. 28. júlí 1907, d. 10. janúar 1996. Hún var um stutt skeið í Eyjum, en fluttist til Lovísu systur sinnar og bjó þar.
2. Samúel Ingvarsson sjómaður, verkamaður, bóndi fæddist 7. september 1908 og lét 15. desember 1993.
3. Tryggvi Ingvarsson á Stóru-Heiði, f. 27. janúar 1910, d. 3. maí 1945, fórst við störf í Hraðfrystistöðinni.
4. Jóhanna Svava Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1911, d. 16. maí 1992.
5. Leó Ingvarsson sjómaður, járnsmiður, f. 22. september 1913, d. 29. nóvember 2005.
6. Ingibjörg Fjóla Ingvarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 11. janúar 1918, d. 7. apríl 2010.
Börn Ingibjargar Samúelsdóttur og Jóns Vigfúsar Vigfússonar, síðar í Túni:
1. Ingibjörg Jónsdóttir vinnukona, f. 12. febrúar 1859 í Krókatúni, d. 24. júlí 1940.
2. Pálína Jónsdóttir, f. 23. mars 1860 í Krókatúni, d. 16. júlí 1882 úr mislingum.
3. Sigríður Jónsdóttir, f. 1861 í Krókatúni, d. 15. júlí 1882 úr mislingum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.