Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2007/Guðjón Hafliðason, skipstj. og útgerðarmaður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón Ármann Eyjólfsson


Guðjón Hafliðason


skipstjóri og útgerðarmaður, Skaftafelli. Fjölskyldan frá Fjósum í Mýrdal.


Í byrjun vélbátaaldarinnar í Vestmannaeyjum hópuðust stórar og barnmargar fjölskyldur til Vestmannaeyja til þess að leita þar fjár og frama. Fjölskyldan frá Fjósum í Mýrdal er gott dæmi um það dugnaðarfólk, sem streymdi að, alls staðar af landinu til Vestmannaeyja og tók þátt í hinni miklu og þróttmiklu uppbyggingu sem var í Eyjum á fyrstu árum vélbátaútgerðar þar á fyrri hluta 20. aldar.

Systkynin frá fjósum. Fremri röð f.v: Þórunn Jakobína í Eyjarhólum. Karólína Margrét Hafnarfirði. Guðrún húsfreja Felli, síðar Kópavogi. Aftari röð f.v: Guðjón á Skaftafelli, Jón á Bergsstöðum, Þorsteinn skósmiður í Steinholti.

Ætt og uppruni
Guðjón Hafliðason skipstjóri á Skaftafelli var eitt systkinanna frá Fjósum en mörg þeirra settust að í Vestmannaeyjum og eignuðust þar fjölda afkomenda sem enn setja svip á bæinn. Guðjón Hafliðason var fæddur 8. júní 1889 í Fjósum í Mýrdal, Hvammshreppi V-Skaftafellssýslu. Hann andaðist í Vestmannaeyjum 13. júlí 1963.
Systkini Guðjóns Hafliðasonar á Skaftafelli sem Hafliði Narfason (f.1838 - d.1895), faðir hans átti með fyrri konu sinni Guðrúnu Þorsteinsdóttur (f. 1849 - d. 1881) voru hálfsystkinin:
Þórunn Jakobína f. 1875, húsfreyja Eyjarhólum í Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og Reykjavík; eiginmaður Gísli Geirmundsson. Þeirra börn: Hafliði, Sigríður Júlíana, Jóhannes Gunnar í Eyjarhólum og Guðlaugur í Geysi, en þeir bræður voru þekktir borgarar í Vestmannaeyjum og Guðlaugur bæjarstjóri og alþingismaður Vestmannaeyinga í fjöldamörg ár.
Guðrún, f. 1878, húsfreyja Kiðabergi í Vestmannaeyjum; eiginmaður Ágúst Benediktsson útgerðarmaður. Þeirra börn: Sigríður Ísleif húsfreyja í Reykjavík, Jóhanna gift Baldri Ólafssyni bankastjóra, Guðrún Ágústa gift Willum Andersen skipstjóra og Jóhann Óskar Alexis (Alli rakari), rakarameistari í Vestmannaeyjum og Kópavogi.
Guðlaug Helga, f. 1877, húsfreyja í Dalsseli Vestur-Eyjafjöllum; eiginmaður Auðunn Ingvarsson. Þeirra börn: Guðrún, Ólafur Helgi, Leifur, Hafsteinn, Ingigerður Anna, Hálfdán, Margrét, Sighvatur, Valdimar (harmóníkuleikari), Konráð Oskar og Guðrún Ingibjörg.
Þorsteinn f. 1879, skósmiður í Steinholti og síðar Skjaldbreið í Vestmannaeyjum; eiginkona Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Þeirra börn: Þórunn Jakobína á Hvoli (Urðavegi 17), Bjarni Eyþór á Skjaldbreið (Urðavegi 36), Hafsteinn símstjóri í Reykjavík, Guðrún húsfreyja í Reykjavík.

Fjölskylda hjónanna Guðjóns Hafliðasonar og Halldóru Þórólfsdóttur á Skaftafelli. Myndin var tekin árið 1938. Fremri röð f.v: Guðjón Hafliðason, Óskar, Ester (fremst við hlið föður síns:, Anna, Hafliði, Halldóra Þórólfsdóttir. Aftari röð f.v: Guðbjörg, Ingólfur, Auður, Trausti, Rebekka, Haraldur og Elísabet.
Mýrdælingur VE 283, 16,5 tonn. Guðjón á Skaftafelli var formaður með bátinn frá 1930 til 1937.


Alsystkini Guðjóns á Skaftafelli sem Hafliði Narfason átti með seinni konu sinni Guðbjörgu Jónsdóttur (f. 1855 - d. 1931) voru:
Guðrún, f. 1885, húsfreyja á Dyrhólum og Felli í Reynissókn, síðar Kópavogi. eiginmaður Eiríkur Jóhannsson. Þeirra börn: Örnólfur, Hafliði, Björgvin, Jóhann Magnús, Ólafur Kjartan, Leifur, Guðbjörg Svava og Guðlaugur.
Jón, f. 1887, útvegsbóndi og verkamaður á Bergsstöðum við Urðaveg (24); eiginkona Sigríður Bjarnadóttir. Þeirra börn: Stefán, Margrét Guðbjörg og Borgþór Hafsteinn veðurfræðingur.
Jón Hafliðason á Bergsstöðum átti m.a. hlut í bátunum Hauk VE 127, Jóhönnu VE 147 og vertíðina 1919 var hann formaður með Björg VE 206. Hann var alinn upp í Dyrhólum
Sigurleif. 14. febrúar 1891, dó 20. desember 1891.
Karólína Margrét, f. 1894, húsfreyja í Hafnarfirði; eiginmaður Skúli Grímsson. Þeirra börn: Halldóra og Vilhjálmur prófessor við HÍ.

Áhöfn Mb Mýrdælings VE 283 árið 1930. Fremri röð frá vinstri: Ingvar Þórólfsson Birtingarholti, vélstjóri, Guðjón Hafliðason Skaftafelli, formaður, Einar Guðjónsson skaftafelli. Aftari röð frá vinstri: Hjörtur Gunnlaugsson Stakkholti, Brynjólfur Kristinn Friðriksson Látrum, Páll Þórðarson Laufholti, Einar Jón Guðmundsson Uppsölum.

Til Vestmannaeyja
Eins og kemur fram í æviágripi Hafliða Guðjónssonar um föður sinn flutti Guðjón Hafliðason til Vestmanneyja árið 1908 með bróður sínum, Þorsteini skósmið.
Guðjón Hafliðason var kvæntur Halldóru Kristínu Þórólfsdóttur frá Hólmaseli í Gaulverjabæjarhreppi, f. 10. júlí 1893, dáin í Vestmannaeyjum 10. janúar 1985. Hún var systir Ingvars í Birtingarholti við Vestmannabraut, en Ingvar kvæntist Þórunni Friðriksdóttur sem var af annarri fjölmennri ætt, fjölskyldunni frá Rauðhálsi í Mýrdal. Margt af því fólki flutti til Vestmannaeyja um og eftir 1920 og urðu mörg systkinin þekktir Vestmannaeyingar (Sigríður sem bjó við Helgafellsbraut og gift var Halldóri Halldórssyni stýrimanni, Sigurður verkstjóri á Hásteinsvegi, kvæntur Elísabetu Hallgrímsdóttur, Þórhalla (Halla) síðari kona Ásmundar Friðrikssonar skipstjóra á Löndum, Oddsteinn vélstjóri, Ragnheiður (Alla) í Björk við Vestmannabraut, eiginkona Haraldar Þorkelssonar vélsmiðs, Ragnhildur (Ragna), sem bjó við Brekastíg, eiginkona Guðlaugs Halldórssonar skipstjóra; öll börn hjónanna Þórunnar Oddsdóttur og Friðriks Vigfússonar bónda; sjá Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2001).

Guðjón Hafliðason og Halldóra Þórólfsdóttir á trúlofunardaginn 1912.

Það lýsir vel húsnæðisvandræðum sem voru í Vestmannaeyjum á þessum árum að árið 1912 hófu þau Halldóra og Guðjón búskap á Brekku og bjuggu þar í einu herbergi með eldunaraðstöðu frammi á ganginum. Þórólfur, faðir Halldóru, flutti til ungu hjónanna að Brekku þetta sama ár, 1912, bar sem þau bjuggu í eitt ár en síðar að Eyjarhólum. Árið 1915 flutti Ingveldur, móðir Halldóru, til beirra hjóna.
Þau hjón, Guðjón og Halldóra, fluttu síðan með fjölskyldu sína að Skaftafelli við Vestmannabraut árið 1915 þar sem þau bjuggu upp frá því og voru ætíð kennd við Skaftafell. Þau hjón eignuðust 11 börn, allt hið mesta myndarfólk og urðu mörg þeirra systkina þekktir borgarar í Vestmannaeyjum en þau voru: Ingólfur, vélstjóri og bóndi í Lukku, f. 1913, d. 1998. Trausti vélstjóri og húsasmíðameistari í Vestmannaeyjum, f. 1915; Guðbjörg sjúkraliði, f. 1916; Auður húsmóðir Ísafirði, f. 1918, d. 2001; Haraldur verkstjóri í Vestmannaeyjum og Keflavík og síðar forstöðumaður Hvítasunnusafnaðarins í Keflavík og Svíþjóð, f. 1920, d. 1993; Rebekka, húsmóðir í Vestmannaeyjum, f. 1923, d. 1944; Elísabet hjúkrunarkona í Vestmannaeyjum og Reykjavík, f. 1926; Óskar smiður og sundlaugarstarfsmaður í Vestmannaeyjum, f. 1927; Anna hjúkrunarkona í Vestmannaeyjum og Danmörku, f. 1929; Ester húsmóðir í Vestmannaeyjum, f. 1934; Hafliði umsjónarmaður í Reykjavík, f. 1936.
Hér á eftir fer þáttur Hafliða Guðjónssonar um sjómannsferil föður hans, Guðjóns á Skaftafelli.

Guðjón Ármann Eyjólfsson
Skipasmíðastöðin í Frederikssund, Danmörku. Í þessari skipasmíðastöð voru bggðir fjölmargir vélbátar Vestmannaeyinga frá 190 og fram undir seinna stríð 1939.
Mb. Mýrdælingur VE 283 á innsiglingu.