Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir húsfreyja á Selfossi fæddist 18. júní 1959.
Foreldrar hennar voru Ingvar Sigurjónsson frá Skógum við Bessastíg 8, sjómaður, beitningamaður, trésmiður, f. 7. júní 1926, d. 15. júlí 2015, og kona hans Álfheiður Sigurðardóttir frá Gljúfri í Ölfusi, húsfreyja, f. 6. nóvember 1921, d. 7. september 1999.

Börn Álfheiðar og Ingvars:
1. Hólmfríður Ingvarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði á Akureyri, f. 17. maí 1950, gift Kristjáni Vagnssyni.
2. Sigþór Ingvarsson, f. 16. október 1953 á Eystri Oddsstöðum. Kona hans er Guðrún Dröfn Guðnadóttir
3. Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir húsfreyja á Selfossi, f. 18. júní 1959, gift Erni Braga Tryggvasyni.
4. Sigurjón Ingvarsson, f. 8. júní 1962 í Eyjum. Kona hans er Ágústa Hulda Árnadóttir.

Þau Örn Bragi giftu sig, eignuðust þrjú börn.

I. Maður Sigurlínar Guðnýjar er Örn Bragi Tryggvason þjónustumaður mjaltatækja hjá Aflvélum, f. 11. nóvember 1958.
Börn þeirra:
1. Ingvar Örn Arnarson, f. 23. desember 1985.
2. Margrét Arnardóttir, f. 8. október 1995.
3. Heiða Hlín Arnardóttir, f. 19. maí 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.