Sigurður Guðmundsson (bonn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sigurður Guðmundsson


Sigurður Guðmundsson, betur þekktur sem Siggi bonn, var fæddur að Hlíðarhúsi 10. apríl 1858.
Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson og Sigríður Jónsdóttir. Hann lést 27. júní 1911, þá skráður á sveit í Svaðkoti, aðeins 53 ára gamall.

Viðurnefni hans, bonn, er líklegast dregið af franska lýsingarorðinu bon, sem þýðir góður, eða kvenkynsmyndinni bonne, sem er borin fram bonn. Á hans árum var mikið um franskar skútur og skútukarla hér við land og var mikið mælt á frönsku (golfrönsku) í hverju sjávarplássi í viðskiptum við Frakkana. Má það vel vera að frönsku skútukarlarnir hafi byrjað að kalla hann þessu viðurnefni eins og það er þekkt í dag. Einnig er talið að hann hafi búið í húsinu Bonn og hafi þannig fengið viðurnefni sitt.

Siggi samdi vísur, en oft þótti það ekki mikill skáldskapur á þeim tíma. Ein best þekkta vísa hans, sem var gjarnan sungin undir alkunnu sálmalagi á Þjóðhátíð hér áður fyrr, er Til hákarla:

Til hákarla í Vestmannaeyjum
fara þeir norðan gaddi í.
Hálfkaldir koma þeir að landi,
upp á Vertshúsið skunda þeir.
Sína sjóblauta vettlinga
verða þeir setja upp grútuga.

Heimildir

  • Heimaslóð og Siggi bonn, bls. 63-65. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1973-1974. 23.-24. árg.

Frekari umfjöllun

Sigurður Guðmundsson frá Hólnum, öðru nafni (Jónshús) , kallaður Siggi bonn, fæddist 10. apríl 1858 og lést 27. júní 1911.
Foreldrar hans voru Sigríður Jósdóttir bústýra, f. 1828, d. 6. mars 1900, og Guðmundur Guðmundsson smiður, f. 1828, d. 26. september 1890.

Sigurður var með föður sínum og Valgerði bústýru hans á Hólnum 1859 og enn 1867, á Kirkjubæ 1868 og enn 1883, þá 25 ára.
Hann var vinnumaður í Stóra-Gerði 1884, á Löndum 1885 og 1886, á Kirkjubæ 1887 og 1888, í Stóra-Gerði 1889 og 1890, í Litlakoti 1892-1894, í Nýborg 1895.
Sigurður var vinnumaður í Nýborg 1901, á Kirkjubæ 1910.
Hann lést 1911 á sveit í Svaðkoti

I. Barnsmóðir Sigurðar var Guðríður Jónsdóttir, þá á Búastöðum, f. 24. júlí 1851, d. 13. desember 1885 af þessum barnsförum.
Barn þeirra var
1. Guðmundur Sigurðsson, síðar skósmiður í Hafnarfirði, f. 8. desember 1885, d. 10. nóvember 1949.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.