Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, bókavörður hjá Bókasafninu í Eyjum, fæddist 7. júlí 1954.
Foreldrar hennar Sigurgeir Jónasson frá Skuld við Vestmannabraut 40, ljósmyndari, verkstjóri, hafnarvörður, f. 19. september 1934, og kona hans Jakobína Guðlaugsdóttir frá Geysi við Skólaveg 21, húsfreyja, skrifstofumaður, golfmeistari, f. 30. mars 1936, d. 4. febrúar 2004.

Börn Jakobínu og Sigurgeirs eru:
1. Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, f. 7. júlí 1954.
2. Guðlaugur Sigurgeirsson, f. 16. júlí 1956.
3. Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir, f. 16. júlí 1965.

Sigrún var með foreldrum sínum, við Kirkjubæjarbraut 3.
Hún varð stúdent í MR.
Sigrún Inga var bókavörður við Bókasafnið í Eyjum.

Þau Gunnar Kristinn giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Rvk og við Brimhólabraut 28 í Eyjum.

I. Maður Sigrúnar Ingu var Gunnar Kristinn Gunnarsson, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri, f. 21. febrúar 1950 í Rvk, d. 4. september 2024 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. María Kristín Gunnarsdóttir, f. 28. ágúst 1974. Sambúðarmaður hennar Atli Þór Þórsson.
2. Gunnar Geir Gunnarsson, f. 18. ágúst 1976. Kona hans Fríða Björk Arnardóttir.
3. Inga Lilý Gunnarsdóttir, f. 7. september 1977. Maður hennar Hilmar Örn Þórlindsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.