Ritverk Árna Árnasonar/Sigurgeir Jónasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurgeir Jónasson.

Kynning.

Sigurgeir Jónasson ljósmyndari fæddist 19. september 1934.
Foreldrar hans voru Jónas Sigurðsson í Skuld, f. 29. mars 1907, d. 4. janúar 1980, og kona hans Guðrún Kristín Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 5. mars 1907, d. 26. mars 2005.
Kona Sigurgeirs var Jakobína Guðlaugsdóttir húsfreyja, f. 30. mars 1936, d. 4. febrúar 2004.
Börn Sigurgeirs og Jakobínu eru:
1. Sigrún Inga, f. 7. júlí 1954.
2. Guðlaugur, f. 16. júlí 1956.
3. Guðrún Kristín, f. 16. júlí 1965.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Sigurgeir er hár vexti, þrekinn um herðar, en niðurmjór svo sem títt er um sterka menn. Hann er vel sterkur, þjálfaður vel af íþróttum, snar og liðugur. Hann er ljóshærður og bjartur yfirlitum. Hann er kátur og skemmtilegur í framkomu, prýðis félagi og drengur góður, fríður ásýndum, ósérhlífinn við alla vinnu, trúr og traustur.
Veiðimaður er hann orðinn vel góður, þótt ungur sé og á eflaust eftir að þjálfast í þeirri íþrótt.
Lífsstarf hans er verkstjórn hjá Bæjarútgerð Vestmannaeyja og nýtur hann verðskuldaðs trausts undir- og yfirmanna sinna í hvívetna. Hann er Álseyingur í húð og hár, hefir ekki enn verið í annari útey til veiða, maður, sem nýtur fyllsta trausts og vináttu félagsbræðra sinna þar.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Sigurgeir Jónasson


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.