Páll Jónsson prestur
Páll Jónsson skáldi fæddist árið 1779 og lést 12. september 1846. Hann var prestur að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum frá 1822 til 1837. Hann var fæddur að Gjábakka í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Jón Eyjólfsson undirkaupmaður í Vestmannaeyjum og kona hans Hólmfríður Benediktsdóttir prests Jónssonar. Foreldrar hans önduðust ung og ólst hann upp hjá Hans Klog kaupmanni í Vestmannaeyjum.
Páll varð stúdent úr heimaskóla árið 1800 með vottorði frá Geir Vídalín biskupi. Hann vígðist, árið 1810, sem aðstoðarprestur Einars Þorleifssonar prests í Guttormshaga í Holtum, en 1818 varð hann aðstoðarprestur Bjarnhéðins Guðmundssonar að Kirkjubæ og fékk veitingu fyrir prestakallinu 1822 og hélt því til fardaga 1837 er hann beiddist lausnar er prestakallið var sameinað Ofanleitisprestakalli.
Hann var síðasti presturinn á Kirkjubæ. Séra Páll var talinn gáfumaður að upplagi, skáldmæltur vel og var mjög létt um að yrkja.
Kona hans var Guðrún Jónsdóttir ljósmóðir og eignuðust þau 13 börn, þar á meðal Sólveigu ljósmóður er varð forstöðukona fyrstu opinberu fæðingarstofnunar landsins, að Landlyst í Vestmannaeyjum. Aðeins 6 barna þeirra náðu fullorðins aldri.
Börn Guðrúnar og Páls:
1. Eva Hólmfríður, f. 22. janúar 1812 í Árbæjarsókn í Holtum, d. 28. maí 1866.
2. Sigþrúður, f. 28. maí 1813 í Árbæjarsókn. Hún mun hafa dáið ung.
3. Guðrún eldri, f. 18. apríl 1814, d. um 1909 í Landeyjum.
4. Guðrún yngri („Gunna skálda”), f. 16. október 1815 í Árbæjarsókn, d. 3. marz 1890.
5. Kristín vinnukona, ógift, f. 17. marz 1817, d. um 1900 í Straumfirði á Mýrum.
6. Kristín yngri, f. 17. október 1818, d. 4. nóvember s. ár úr „barnaveiki“.
7. Ingveldur, f. 30. júlí 1820, d. 5. ágúst s. ár úr „barnaveiki“.
8. Sólveig ljósmóðir, f. 8. október 1821, d. 24. maí 1886.
9. Bergljót, f. 5. jan. 1823, d. 7. maí s. ár úr „barnaveiki“.
10. Gísli, f. 30. ágúst 1824, d. 9. september 1824 úr „barnaveiki“.
11. Jón, f. 15. febrúar 1826, d. 23. febrúar 1826 úr „barnaveiki“.
12. Ingigerður, f. 25. september 1827, dó líklega ung.
13. Páll trésmíðanemi, f. 19. febrúar 1833, hrapaði til bana úr Hábarði í Elliðaey 20. ágúst 1857.
Tenglar
- Handrit Páls Jónssonar á Handrit.is
- Vísur Páls Jónssonar hjá Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.
- Hljóðskrár tengdar Páli Jónssyni á Ísmús.is
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
- Páll Eggert Ólason: Íslenzkar æviskrár. Rvk 1951, IV. 126-127
- Ragnar Ásgeirsson: Skrudda II. Útg. Búnaðarfélag Íslands 1958.