Páll Óskar Gunnarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Páll Óskar Gunnarsson frá Horninu við Vestmannabraut 1, vélstjóri fæddist 21. apríl 1914 í Miðey við Heimagötu 33 og lést 10. október 1976.
Foreldrar hans voru Gunnar Marel Jónsson skipasmíðameistari, f. 6. janúar 1891, d. 7. maí 1979, og kona hans Sigurlaug Pálsdóttir húsfreyja, f. 20. maí 1892, d. 23. apríl 1976.

Börn Sigurlaugar og Gunnars:
1. Páll Óskar Gunnarsson, f. 21. apríl 1914 í Miðey, d. 10. október 1976.
2. Guðrún Olga Gunnarsdóttir, f. 26. apríl 1915 í Miðey, d. 25. október 1925.
3. Gunnlaugur Tryggvi Gunnarsson vélstjóri, f. 29. apríl 1916 í Miðey, d. 22. mars 2001.
4. Eggert Gunnarsson, f. 13. júní 1917 í Þinghúsinu, d. 24. febrúar 1920.
5. Rannveig Hulda Gunnarsdóttir, f. 2. ágúst 1918 í Bifröst, d. 3. desember 1918.
6. Guðmunda Gunnarsdóttir húsfreyja, verkalýðsfrömuður, bæjarfulltrúi, f. 30. júlí 1920 á Oddsstöðum, d. 25. maí 2009.
7. Eggert Gunnarsson skipasmíðameistari, f. 4. september 1922 í Brúarhúsi, (Horninu, Vestmannabraut 1), d. 4. janúar 1991.
8. Guðni Kristinn Gunnarsson verkfræðingur í Bandaríkjunum, verksmiðjustjóri, f. 25. október 1925 í Brúarhúsi, d. 10. júlí 1984.
9. Jón Gunnarsson vélstjóri, skipasmíðameistari, f. 2. desember 1927 í Brúarhúsi, d. 4. desember 2005.
10. Svava Gunnarsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1929 í Brúarhúsi.
11. Þorsteinn Gunnarsson vélstjóri, f. 1. nóvember 1932 í Brúarhúsi, d. 24. maí 1958.
12. Þórunn Gunnarsdóttir húsfreyja, f. 7. mars 1939 í Brúarhúsi, d. 12. júní 2020.
Börn Gunnars Marels og [[Kristín Jónsdóttir (Nýjabæ)|Kristínar Sigríðar Jónsdóttur:
13. Ingvar Valdimar Gunnarsson, f. 10. nóvember 1910 í Hólshúsi, d. 25. ágúst 1928.
14. Ásta Rut Gunnarsdóttir húsfreyja í Hólshúsi f. 26. janúar 1914, d. 22. desember 2000.
Barn Gunnars Marels og Jónínu Jóhannsdóttur:
15. Margrét Theodóra Gunnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 1. nóvember 1911, d. 28. apríl 1991.

Páll Óskar var með foreldrum sínum.
Hann lærði vélstjórn.
Páll Óskar flutti úr Eyjum 1939.
Þau Margrét giftu sig 1942, eignuðust eitt barn, sem lést nýfætt. Þau bjuggu síðast á Hlíðarvegi 42 í Kópavogi.

I. Kona hans, (20. ágúst 1942), var Sigurlín Margrét Eiríksdóttir, f. 10. nóvember 1916, d. 5. september 2008. Foreldrar hennar Eiríkur Sveinsson sjómaður í Reykjavík, f. 8. júlí 1884, d. 27. nóvember 1970, og Halldóra Árnadóttir, f. 4. júní 1892, d. 15. febrúar 1979.
Barn þeirra:
1. Drengur, lést nýfæddur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.