Margrét Theodóra Gunnarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Theodóra Gunnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík fæddist 1. nóvember 1911 í Fagurhól og lést 28. apríl 1991.
Foreldrar hennar voru Gunnar Marel Jónsson skipasmíðameistari, f. 6. janúar 1891, d. 7. maí 1979 og barnsmóðir hans Jónína Jóhannsdóttir, síðar húsfreyja í Garðsauka og á Hamri, f. 30. október 1886, d. 6. september 1976.

Margrét var í fóstri í Sædal (Vesturvegi 6) hjá Nikulási Illugasyni og Kristínu Pálsdóttur, var þar enn 1927, en var farin úr Eyjum 1930.
Hún giftist Guðjóni 1934. Þau bjuggu í Reykjahlíð 12 í Reykjavík, eignuðust 4 börn.

Maður Margrétar Theodóru, (í nóvember 1934), var Guðjón Sigurðsson múrarameistari, f. 16. febrúar 1910, d. 26. maí 1998.
Börn þeirra:
1. Auður Guðjónsdóttir kennari og húsfreyja í Reykjavík, síðan í Glenboro í Kanada, f. 1. júní 1937.
2. Unnur Guðjónsdóttir húsfreyja í Stokkhólmi, ballettkennari, f. 10. ágúst 1940.
3. Bergljót Guðjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. desember 1941.
4. Bragi Guðjónsson múrari í Reykjavík, f. 26. desember 1944.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.