Magnúsína Guðbjörg Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Magnúsína Guðbjörg Magnúsdóttir.

Magnúsína Guðbjörg Magnúsdóttir (Nancy) frá Stapa, húsfreyja í Eyjum og Þorlákshöfn fæddist 14. apríl 1920 á Bergi og lést 11. mars 2005.
Foreldrar hennar voru Magnús Valdimar Jónsson frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, skipasmiður á Bergi, f. 27. október 1892, d. 13. október 1920 og sambýliskona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Kagaðarhóli í Torfalækjarhreppi í A-Hún., síðar bústýra á Stapa, f. 16. ágúst 1894, d. 2. maí 1976.

Börn Magnúsar Valdimars og Guðbjargar:
1. Magnúsína Guðbjörg Magnúsdóttir húsfreyja á Stapa, síðar í Þorlákshöfn, f. 14. apríl 1920, d. 11. mars 2005. Maður hennar var Engilbert Þorbjörnsson bifreiðastjóri frá Kirkjubæ.
2. Jóna Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 19. september 1916, d. 20. október 1939.

Börn Guðbjargar og Guðmundar Jónssonar:
3. Guðmunda Jóna Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1922, d. 10. október 1984.
4. Sigurbjörg Kolbrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1924, d. 12. apríl 1975.
5. Friðbjörg Guðmundsdóttir, síðast í Reykjavík, f. 10. mars 1926 á Bólstað, d. 30. júlí 1997.
6. Jón Egilsson Guðmundsson, f. 28. september 1927, d. fyrir 1930.
7. Þóra Egilsína Guðmundsdóttir, f. 4. janúar 1930 á Bessastíg 4, d. 9. júlí 2008.

Fósturbörn Guðbjargar og Guðmundar voru:
8. Dóttursonur Guðbjargar, Arnar Semingur Andersen sjómaður, f. 12. október 1935, sonur Jónu Ingibjargar Magnúsdóttur. Faðir hans var Svend Ove Andersen frá Friðrikssundi í Danmörku.
9. Dótturdóttir Guðbjargar, dóttir Sigurbjargar, Ingibjörg Nancy Kudrick Morgan, f. 12. júlí 1943.

Magnúsína Guðbjörg var 6 mánaða gömul, er hún missti föður sinn. Hún var með móður sinni og Jónu Ingibjörgu systur sinni á Bergi í lok árs 1920, með lausakonunni móður sinni á Bergi 1923, með bústýrunni móður sinni þar 1924, með móður sinni, Jónu Ingibjörgu systur sinni auk Guðmundar og tveggja hálfsystra á Eystri-Vesturhúsum 1927, með þeim á Bessastíg 4 1930, með þeim á Litlu-Eyri 1934.
Hún var unnusta Jóns á Sleipnisvegi 15 á Akranesi við fæðingu Valdimars 1936.
Þau Engilbert giftu sig 1944 og bjuggu á Steinsstöðum, á Stapa 1949 með kjörbarninu Guðbjörgu Helgu, að lokum í Grænuhlíð 19 skamma stund fram að Gosi.
Þau fluttu til Hveragerðis, þá á Selfoss, en lokum til Þorlákshafnar og bjuggu þar síðan.
Engilbert lést 1998 og Magnúsína Guðbjörg 2005.

I. Barnsfaðir Magnúsínu Guðbjargar var Jón Björnsson, f. 4. október 1909 í Dalhúsum í Eiðaþinghá, d. 22. mars 1996.
Barn þeirra:
1. Valdimar Jónsson, f. 1. nóvember 1936 á Akranesi, d. í sama mánuði.

II. Maður Magnúsínu Guðbjargar, (1. desember 1944), var Engilbert Þorbjörnsson frá Kirkjubæ, bifreiðastjóri, f. 4. júlí 1923, d. 31. október 1998.
Kjörbarn þeirra:
2. Guðbjörg Helga Engilbertsdóttir, f. 6. september 1947. Blóðmóðir hennar var Jóhanna Bjarney Júníusdóttir, f. 17. febrúar 1930, d. 23. maí 1973.
Fóstursonur, sonur Guðbjargar Helgu:
3. Magnús Engilbert Lárusson, f. 13. nóvember 1963. Faðir hans var Guðmundur Lárus Guðmundsson frá Landlyst, f. 1. september 1942, d. 24. október 2016.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.